Greinar

Yrði ekki bara vit-leysa heldur vit-firring

By Miðjan

July 10, 2026

Ragnar Önundarson skrifaði á Facebook:

„Að baki vilja fóks til að ganga í ESB er þráhyggjan um að evra skuli leysa krónuna af hólmi. Atvinnulíf okkar er einhæft, þess vegna erum við með krónuna:

Gengislækkun eftir samdrátt þjóðartekna bitnar hlutfallslega jafnt á öllum. Niðurfærsla („hin leiðin“ – launalækkun) bitnar ekki á öllum af því að stórir hópar ákveða laun sín sjálfir. Gengislækkun, með hliðarráðstöfunum vegna þeirra verst settu, er merkilegt nokk, jafnaðar-vænni en „hin leiðin.“ Merkilegt er að jafnaðarmenn eiga erfitt með að skilja það.

Annað sem skiptir miklu og hefur hjálpað okkur að komast strax aftur í „topp-baráttuna“ eftir áföll er að gjaldeyrisaflandj fyrirtæki lifa af með lækkun gengis og þegar rofar til á ný nýtast framleiðslutækin. Með föstu gengi (evru) verða fjöldagjaldþrot í sömu greinum á sama tíma og af sömu ástæðu, sem stjórnendur fyrirtækjanna fá engu um ráðið. Eigendurnir verða eigna- og kjarklausir. Nýir fjárfestar beina fé sínu í annað, skiljanlega. Að stefna útflutningsfyrirtækjum öllum í þrot með þessum hætti (evru) yrði er ekki bara vit-leysa heldur vit-firring.