Samstaða ríkisstjórnar, Miðflokks og Flokks fólksins um breytingarnar á útlendingalögum

Gunnar Smári skrifaði fyrir Samstöðina:

Það myndaðist traust bandalag milli ríkisstjórnarflokkanna annars vegar og Miðflokks og Flokks fólksins annars vegar þegar umdeildar breytingar á útlendingalögum fóru í gegnum þingið síðasta vetur. 38 þingmenn greiddu atkvæði með lögunum en þeir hefðu líklega geta orðið fleiri þar sem átta þingmenn þessara flokka voru fjarverandi atkvæðagreiðsluna.

Enginn
þingmaður þessara flokka greiddi atkvæði gegn frumvarpinu. Og enginn þingmaður
Samfylkingar, Viðreisnar og Pírata greiddi atkvæði með lögunum. 15 þingmenn
þessara flokka greiddu atkvæði gegn frumvarpinu en tveir voru fjarverandi:
Halldóra Mogensen og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.

Þessar
breytingar voru því samþykktar í traustum meirihluta ríkisstjórnar og flokka
sem kalla má ný-hægrið á Íslandi: Miðflokks og Flokks fólksins.

Þrettán
þingmenn Sjálfstæðisflokksins greiddu atkvæði með lögunum: Ásmundur
Friðriksson, Birgir Ármannsson, Bjarni Benediktsson, Bryndís
Haraldsdóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson, Guðrún Hafsteinsdóttir,
Haraldur Benediktsson, Hildur Sverrisdóttir, Jón Gunnarsson, Njáll
Trausti Friðbertsson, Óli Björn Kárason, Vilhjálmur Árnason og
varaþingkonan Berglind Harpa Svavarsdóttir. Fjórir þingmenn
Sjálfstæðisflokksins voru fjarverandi: Áslaug Arna
Sigurbjörnsdóttir, Birgir Þórarinsson, Diljá Mist Einarsdóttir og
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.

Tólf
þingmenn Framsóknar greiddu lögunum atkvæði: Ágúst Bjarni
Garðarsson, Ásmundur Einar Daðason, Hafdís Hrönn
Hafsteinsdóttir, Halla Signý Kristjánsdóttir, Lilja
Alfreðsdóttir, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, Líneik Anna
Sævarsdóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson, Stefán Vagn
Stefánsson, Willum Þór Þórsson, Þórarinn Ingi Pétursson og varaþingkonan
Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir. En Ingibjörg Isaksen var fjarverandi
atkvæðagreiðsluna.

Lögin
voru samþykkt af sex þingmönnum VG: Bjarni Jónsson, Guðmundur Ingi
Guðbrandsson, Jódís Skúladóttir, Orri Páll Jóhannsson, Steinunn
Þóra Árnadóttir og Svandís Svavarsdóttir. En Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir og
Katrín Jakobsdóttir voru fjarverandi atkvæðagreiðsluna.

Aðeins
varaþingmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, Anna Kolbrún Árnadóttir, greiddi
atkvæði með frumvarpinu fyrir Miðflokkinn þar sem Bergþór Ólason var
fjarverandi þegar atkvæðagreiðslan fór fram.

Sex
þingmenn Flokks fólksins greiddu atkvæði með lögunum: Ásthildur Lóa
Þórsdóttir, Guðmundur Ingi Kristinsson, Inga Sæland, Jakob
Frímann Magnússon, Tómas A. Tómasson og varaþingmaðurinn Sigurjón
Þórðarson.

Myndir er af forystufólki flokkanna sem tryggðu breytingunum brautargengi.