Það sem Miðflokkurinn vissi ekki

„Vissum við ekki að VG, Vinstri græn, væru helstu málsvarar markaðsvæðingar orkuauðlinda þjóðarinnar.“

Þorsteinn Sæmundsson Miðflokki taldi upp það sem hann og flokksfélagar
hans vissu ekki áður en þeir lögðu í málþófið.

„Fyrir framlagningu þingsályktunartillögu um þriðja
orkupakkann vissum við ekki að VG, Vinstri græn, væru helstu málsvarar
markaðsvæðingar orkuauðlinda þjóðarinnar. Við vissum heldur ekki þá að Vinstri
græn vildu stuðla að því að hér á landi yrðu reistir stórir vindmyllugarðar og
smávirkjanir víða um land með tilheyrandi náttúruspjöllum. Við vissum heldur
ekki þá að Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur myndu ganga á bak samþykktum
flokksstofnana sinna um málið. Við vissum ekki fyrir tíu dögum að orkupakki
fjögur væri tilbúinn en við vitum það núna. Við vissum ekki fyrir tíu dögum að
fullfjármagnaður sæstrengur væri tilbúinn, svo að segja í bakgarðinum okkar, á
vegum stórfyrirtækis sem segir á heimasíðu sinni að fyrirtækið sé í góðu
talsambandi við ráðherra í öllum ríkisstjórnarflokkunum og að stuðningur við
verkefnið sé að aukast þverpólitískt. [Hlátur í þingsal.] Við vissum ekki um þá
almennu skoðun meðal færustu lögmanna að fyrirvarar í þingsályktunartillögu
ríkisstjórnarinnar um þriðja orkupakkann væru ónýtir en við vitum það núna. Við
vissum ekki fyrir tíu dögum að stjórnlagadómstóll Noregs myndi taka fyrir
innsetningu þar í september nk. fyrir innleiðingu orkupakkans.“