- Advertisement -

Ríkisstjórnin bregst við verðbólgunni

„Ég hef rætt þessi mál við forystu Alþýðusambandsins og fulltrúa atvinnurekenda…“

Kristrún Frostadóttir.

Efnahagur Ríkisstjórnin mun kynna tímabundnar aðgerðir í efnahagsmálum í dag:

„Þess vegna mun ríkisstjórnin á morgun (í dag) kynna tímabundnar aðgerðir í efnahagsmálum — sem taka á þeirri stöðu sem upp er komin, meðal annars vegna áhrifa af stríðsátökum úti í heimi. Það er óvissa og verður áfram óvissa. En stundum þarf að taka í bremsuna og skipta um gír — detta í nýjan takt. Til að hemja verðhækkanir.

Þannig munum við leggja okkar af mörkum og hvetja atvinnulífið um leið til að leggja okkur lið með afgerandi hætti við að hemja verðbólguna og koma henni í markmið. Þessar aðgerðir verða tímabundnar og koma ekki í staðinn fyrir umbætur sem taka lengri tíma — þvert á móti. En það þarf að taka fast á verðbólgunni bæði í bráð og lengd — ef vel á að takast.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Öndum í kviðinn. Höldum okkar striki. Og höfum trú á verkefninu — fyrir land og þjóð. Því þó það séu óróatímar í alþjóðamálum og verðhækkanir á olíu hafi lekið út í almennt verðlag — þá væri fráleitt að gefast upp og kasta inn handklæðinu.

Hvað þá að gefa sér að kjarasamningar losni og tala með þeim hætti að sífellt hraðari taktur í verðhækkunum sé óumflýjanleg þróun. Við höfum það í hendi okkar að stemma stigu við þessu — með samstilltu átaki. Ég hef rætt þessi mál við forystu Alþýðusambandsins og fulltrúa atvinnurekenda og mun á næstu dögum efna til þríhliða samtals ASÍ, SA og stjórnvalda um leiðir til að hemja verðbólgu á næstu misserum.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: