Minn leiðtogi leiðir af heilindum og af ástríðu fyrir samfélaginu. Að því sögðu, þegar Ingibjörg segist ætla að gera eitthvað þá veit ég að hún gerir það og hún gerir það af öllu hjarta.
Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir.
Umræðan/Framsókn: Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir tengdadóttir Sigurðar Inga skrifaði eftirtektraverða grein á Vísi þar sem hún lýsir yfir eindregnum stuðningi Inibjörgu Isaksen í formannskjöri Framsóknar. Hafdís Hrönn er líka fyrrum þingmaður Framsóknar. Í greininni fer hún fögrum orðum tengdapabba sinn. Hún skrifaði:
„Mín trú er sú að það á enginn að vera í pólitík ef það er til að haka í box, styrkja ferilskránna sína eða verða „atvinnupólitíkus.“ Slíkt fyrir mér er fráhrindandi og ekki rétt nálgun á verkefnið. Þú ferð í þessa vegferð því þú hefur hugsjón, brennandi áhuga á samfélaginu og trú á að þú getir gert samfélagið að betri stað fyrir fólkið í landinu.
Ég hef starfað með Ingibjörgu Isaksen frá árinu 2021. Við erum ekki alltaf sammála og við höfum oft farið horn í horn en það hef ég lært að meta í hennar fari, því það er það sem þroskar heilbrigða pólitíska umræðu og þroskar sterkan flokk! Ingibjörg hefur að mínu mati, allt það sem sterkur leiðtogi stjórnmálaflokks þarf að búa yfir. Hún fær fólk með sér, er opin, aðgengileg, hlustar og hefur þann eiginleika að þú veist bara að hún hlustar og þú veist að hún hleypur strax með það sem þú bendir henni á að þurfi að laga eða þurfi að bregðast við. Hún bregður aldrei frá sinni sannfæringu og rekur sitt skip af mikilli festu og gerir kröfur til þeirra sem hún veit að standa undir þeim.
Ég hef sjálf orðið vitni af því í þinginu að Ingibjörg fær símtal, tölvupóst eða skilaboð á Facebook og hún fer strax að vinna í því að skoða hvernig hún getur hjálpað viðkomandi. Þarna er manneskja með hjartað í verkefninu. Hún er ekki að reyna að haka í einhver starfsferilsbox í pólitík heldur er hún að þessu af öllu sem hún á. Ingibjörg er búin að byggja upp sterka grasrót, fjölga í Framsókn á Norðurlandi eystra, hún hefur sem þingflokksformaður lagt sig fram við það að rækta önnur kjördæmi líka, sýna áhuga á málefnum annarra kjördæma. Það er einmitt það sem leiðtogi gerir, þó það sé ekki endilega í þínum heimagarði, þá skiptir það engu að síður miklu máli. Minn leiðtogi leiðir af heilindum og af ástríðu fyrir samfélaginu. Að því sögðu, þegar Ingibjörg segist ætla að gera eitthvað þá veit ég að hún gerir það og hún gerir það af öllu hjarta. Það er það sem ég stilli mér á bakvið; persónan, keppnismanneskjan og leiðtoginn Ingibjörg Isaksen.
Ég vel umfram allt traust, trúverðugleika og heilindi í næsta formanni Framsóknar.“