Þegar Sigmundur Davíð var skilyrtur Evrópusinni
Stjórnmál: Össur Skarphéðinsson í risa viðtali á Vísi. Lestur þess verður að bíða betri tíma, t.d. páskanna. Þá verður logn. Samstöðin í pásu og rólegra líf. Hér er samt niðurlag þessa langa viðtals, sem sýnilega er ekki ætlað vinnandi fólki:
„Þegar Össur hugsar til baka og rifjar þessa tíma upp og hverrar skoðunar hann var á þeim tíma þá kemur honum mest á óvart að helstur áhrifavaldur á afstöðu hans þá var Sigmundur Davíð!
„Já. Allir hafa gleymt því í dag, að hann var á þessum tíma skilyrtur Evrópusinni og lagði fram eigin þingsályktunartillögu í lotunni í maí 2009 um undirbúning viðræðna. Þar voru fimm skilyrði sem ég pældi mikið í og afstaðan mín um sjávarútveg, sem aldrei komst fram nema í óformlegum viðræðum, mótaðist í reynd af því að svara þeim áhyggjum sem hann reifaði. Þannig að ólíklegustu menn lögðu hönd á plóg.““