Það að þessi hraðbraut færi undir yfirborðið myndi stórbæta lífsgæði tugþúsunda Reykjavíkinga og gefa færi á að þróa landið á yfirborðinu til hagsbóta fyrir hverfin.
Dagur B. Eggertsson.
Alþingi: Dagur B. Eggertsson skrifaði þessa grein eftir að hafa setið fund í samgöngunefnd Alþingis í morgun:
„Ég fagna mjög þeirri yfirlýsingu innviðaráðherra sem svar við spurningu minni á opnum fundi með umhverfis- og samgöngunefnd að hann hafi áhuga á að skoða leiðir til að flýta því að koma Miklubrautargöngum í framkvæmd. Því hef ég talað fyrir um all-nokkurt skeið og sé ekki betur en að flestir ef ekki allir flokkar sem bjóða fram í borgarstjórnarkosningum í vor tali í svipaða átt.
Miklubrautargöng eru mikilvæg samgönguframkvæmd en þau eru líka lykill að því að Borgarlína – á yfirborði – komist til framkvæmda á sömu leið. Það að þessi hraðbraut færi undir yfirborðið myndi stórbæta lífsgæði tugþúsunda Reykjavíkinga og gefa færi á að þróa landið á yfirborðinu til hagsbóta fyrir hverfin.
Það var ekki síður mikilvægt að finna stuðning og staðfestu í málefnum Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og þeirra verkefna sem þar eru í svörum ráðherra á fundinum. Borgarlínan er lykill að því að létta á umferðinni á höfuðborgarsvæðinu, ásamt heildstæðu hjólatígakerfi og umbótum í stofnbrautum. Allt er þetta hluti af Samgöngusáttmálanum. Þær auknu tafir sem hafa orðið í umferðinni undanfarin ár – þeim var spáð, í þeim greiningum sem gerðar voru vegna samgöngusáttmálans. Það er vitað að lang-mikilvægasta framkvæmdin til að létta á umferðinni og vinna gegn þessum og frekari töfum er að hrinda honum í framkvæmd og gera Borgarlínu að veruleika. Spurning um að henda í: Fulla ferð áfram ekkert stopp!“