- Advertisement -

Dagur B. Eggertsson: Hvar er Sigmundur Davíð? Alla vega ekki í þessum sal?

Hér er Miðflokkurinn kominn svo langt út á tún að hann er farinn að tala gegn lægri vöxtum vegna þess að þeir skila ekki neinu.

Dagur B. Eggertsson.

Alþingi: Það hefur margt verið sagt um aðildarviðræður – eða ekki á Alþingi. Dagur B. Eggertsson er mælskur. Hér er hægt að lesa ræðu Dags. Miðjan hefur valið þrjá kafla úr ræðunni og birtir hér að neðan. Hann potar duglega í Sigmund Davíð formann Miðflokksins.

Hefjum lesturinn:

„Hér hefur verið komið inn á lykilhagsmuni Íslands og auðvitað munum við halda vel á þeim í þessum viðræðum, að sjálfsögðu. Ég vek sérstaklega athygli á samningsmarkmiðunum sem eru í greinargerð með þingsályktunartillögunni sem urðu til eftir mjög víðtækt samráð, að hluta til byggt á landsfundarályktun Framsóknarflokksins sem setti þrjú skilyrði við aðild að Evrópusambandinu en að þeim uppfylltum vildi Framsókn ganga inn, Framsókn undir forystu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Hvar er hann nú? Alla vega ekki í þessum sal og hann er búinn að vera úti á túni í allri þessari umræðu, algerlega úti á túni. Við verðum nefnilega að nálgast umræðuna út frá okkar þjóðarhagsmunum, út frá stöðunni í heiminum og út frá því sem skiptir almenning og fyrirtæki í þessu landi mestu máli. Hvað er það? Auðlindir og orka að sjálfsögðu, samkeppnishæfni atvinnulífs, aðgangur að alþjóðlegum mörkuðum, vextir og verðbólga. Þetta eru Evrópumál.“

Þeir treysta ekki þjóðinni.

Ögn síðar sagði Dagur:

„Sannarlega, og við eigum að tala um lífskjör almennings, komandi kynslóða sem þurfa að borga sömu íbúðina þrisvar í staðinn fyrir einu sinni eins og jafnaldrar þeirra innan Evrópusambandsins. Hér er Miðflokkurinn kominn svo langt út á tún að hann er farinn að tala gegn lægri vöxtum vegna þess að þeir skila ekki neinu. Þannig er hatrið á Evrópusambandinu að Miðflokkurinn gengur gegn lykilhagsmunum nýrrar kynslóðar, gegn hagsmunum almennings, gegn hagsmunum lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Hvar er Miðflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn í umræðunni? Með hinum fáu og stóru, með fyrirtækjunum sem eru búin að færa sig út úr krónunni, með þeim sem græða á háum vöxtum, með þeim sem lifa á fákeppni, með þeim sem byggja rekstur sinn á samkeppnisforskoti vegna fámennis, vegna þeirrar hindrunar sem íslenska krónan er.“

Lesum lokakafla ræðunnar:

„Talandi um að gera hreint fyrir sínum dyrum þá væri nú ágætt ef Miðflokkurinn myndi gera hreint fyrir sínum dyrum gagnvart því að vera kominn á spenann hjá MAGA-hreyfingunni, að vera kominn í það að hafa áhrif hér með ráðgjafa Nigel Farage í Bretlandi á íslensk innanríkismál. Ef Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, væri hérna myndi hann líklega segja: Mér fannst mjög óþægilegt að lesa þetta í erlendum fjölmiðlum. Ég ætla ekki að fullyrða neitt í þessu, ég er bara að biðja Miðflokkinn að gera hreint fyrir sínum dyrum því að hér er verið að segja við okkur: Þessir samningar eru bók sem við megum ekki lesa. Þetta er ferðalag sem við megum ekki fara í. Þetta eru upplýsingar sem við megum ekki sjá vegna þess að þessir gömlu valdaflokkar ætla að hafa vit fyrir þjóðinni. Þeir vilja ekki þjóðaratkvæðagreiðslu vegna þess að þeir treysta sér ekki. Þeir treysta ekki þjóðinni til að sjá þann samning sem út úr því gæti komið. Þeir treysta því ekki.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: