Vill forsvarsfólk Isavia á fund fjárlaganefndar.
Stjórnmál: Sigurjón Þórðarson, þingmaður og formaður fjárlaganefnd Alþingis, skrifaði:
„Á þeim stutta tíma sem ég hef gegnt formennsku fjárlaganefnd þá hef fengið innsýn inn í fjölmörg áhugaverð verkefni m.a. hvernig eftirliti og aðhaldi er háttað með opinberum hlutafélögum einkum þeim þáttum sem snúa að fjárfestingum og rekstri.
Það veitir ekki af því að skýra nánar hvernig best sé að hafa eftirlitið innan núverandi skipulags en það getur verið æði flókið.
Ef mig misminnir ekki þá…
Stjórnunin á t.d. ISAVIA ohf. er á ábyrgð Frjármálaráðuneytisins en ekki viðkomandi fagráðuneytis sem hefur með málaflokkinn að gera. Ekki er það heldur til einföldunar að ISAVIA hefur sett hluta af rekstrinum inn í dótturfélög m.a „einkahlutafélögið“ ISAVIA – innanlands.
Upp hafa komið fjölmörg mál hjá ISAVIA sem varða almenning miklu sem tekið hefur langan tíma að greiða úr og eru jafnvel enn í ólestri m.a. leigubílaöngþveitið, bílastæðamál, samgöngur til og frá Keflavíkurflugvelli og fríhöfnin.
Nú síðast var það að ratsjárbúnaði ISAVIA á Akureyrarflugvelli var lokað með stuttum fyrirvara. Búnaðurinn nýttist flugfélögum í innanlandsflugi og skipti því almenna farþega miklu máli.
AFLEGGJA BÚNAÐ SEM NÝTIST Í SLÆMU VEÐRI
Í skýringum með ákvörðuninni kemur orðrétt fram: „Ratsjáin og verklagið sem hefur verið í notkun á Akureyrarflugvelli hefur einungis nýst til að aðstoða flugmenn við lendingu í slæmum veðurskilyrðum og til upplýsingagjafar“.
Ef mig misminnir ekki þá hafi einn tilgangur opinberra hlutafélaga verið auka sveigjanleika og gera stjórnendum kleift að bregðast hratt við þörfum almennings.
Ég vona svo sannarlega að viðbrögð ISAVIA verði skjót í að koma á móts við ábendingar um skert flugöryggi á Akureyri með því að taka umrædda þjónustu í noktun á ný eða þá að skýra málið nánar.
Hvað sem því líður þá á ég von á því að fá forsvarsmenn ISAVIA á fund fjárlagnefndar á næstunni þar sem farið verður yfir m.a. ofangreinda þætti og vænti ég þess að njóta við þá yfirferð m.a. þekkingar og reynslu Njáls Trausta Friðbertssonar.“