- Advertisement -

Er Willum rangstæður?

Stjórnsýsla:

Gunnar Axel Axelsson skrifaði þessa fínu grein:

„Eins og fyrrverandi ráðherra ætti að sjálfsögðu að vita þá á útvistun verkefna sem heyra undir opinbera grunnþjónustu að sjálfsögðu alltaf að vera gerð á grundvelli markaðrar stefnu og vandaðrar ákvarðanatöku stjórnvalda, í samræmi við gildandi lög og reglur.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Ef þetta á hins vegar að vera ferlið, þ.e. að fjárfestir út í bæ láti bara birta frétt sem segir að hann sé að byggja spítala sem ríkið eigi að reka en hann ætli að hirða hagnaðinn af, þá vekur það óhjákvæmilega upp spurningar um hvað liggi þar að baki.

Opinber innkaup, þ.m.t. gerð samninga við einkafyrirtæki um framkvæmd opinberrar þjónustu, eiga að sjálfsögðu alltaf að fylgja meginreglum laga og því verklagi sem er ætlað að tryggja hagsmuni þeirra sem fjármagna kaupin og eru notendur þjónustunnar, þ.e. almenningur í landinu. Það á ekki síst við um þegar og ef um er að ræða þjónustu sem er augljóslega ekki hluti af samkeppnismarkaði og veitandi þjónustunnar öðlast þá einokunarstöðu gagnvart kaupanda þjónustunnar.

Þá er einnig mikilvægt að minna á að fyrrum ráðherrum og öðrum æðstu stjórnendum innan stjórnarráðssins er ekki heimilt að nota upplýsingar sem þeir hafa haft aðgang að og persónuleg tengsl innan kerfisins, sér eða öðrum til óeðlilegs ávinnings.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: