- Advertisement -

Frelsið á undir högg að sækja

„Heyrir maður áhyggjur af þessum aðferðum gegn frelsinu úr ranni Viðreisnar? Nei, það gerir maður ekki.“

Snorri Másson Miðflokki.

„Virðulegi forseti. Við byrjum með leyfi yðar á að vitna til orða hæstvirts utanríkisráðherra vors sem fjallaði um ástandið í heimsmálum á landsþingi flokksins um helgina og sagði þar: Frelsið á undir högg að sækja,“ sagði Snorri Másson Miðflokki á Alþingi í gær.

„Ég vildi fá að taka undir þær áhyggjur undir þessum lið. Það eru nefnilega blikur á lofti, ekki fjær okkur en í sjálfri Evrópu. Evrópskir, svokallaðir frjálslyndir stjórnmálamenn, raunar góður hluti hinna ráðandi frjálslyndu elítu í Evrópusambandinu, eru búnir að komast að þeirri niðurstöðu á þessum síðustu og verstu tímum að eina leiðin til að standa vörð um frjálslynda lýðræðið sé í raun að stjórnvöld sjálf fari á svig við frjálslynda lýðræðið með því t.d. að takmarka tjáningarfrelsi ákveðinna hópa. Hvort sem er í Hollandi eða Þýskalandi, einnig í Bretlandi, er staðan víða orðin sú að ef þú gagnrýnir útlendingastefnu stjórnvalda, ef þú gagnrýnir kynjahugmyndafræði hvers konar, ef þú gagnrýnir einfaldlega ráðandi öfl í einhver mynd áttu á hættu að fá heimsókn frá lögreglu,“ sagði Snorri.

Snorri var ekki hættur:

Þarna er tekin til svokölluð hatursorðræða…

„Hluti af þessari ritskoðun fer fram undir formerkjum svokallaðrar Digitial Services Act, þ.e. heildarlöggjafar Evrópusambandsins á stafræna sviðinu, og hún veitir stjórnvöldum þessa heimild til að stýra því hvað fer fram á samfélagsmiðlum. Heyrir maður áhyggjur af þessum aðferðum gegn frelsinu úr ranni Viðreisnar? Nei, það gerir maður ekki. Maður heyrir hins vegar af því að hæstvirtur dómsmálaráðherra Viðreisnar hyggst núna innleiða stafræna löggjöf Evrópusambandsins á Íslandi í því skyni, er sagt, að meiri tjáning á Íslandi geti talist ólöglegt efni. Þarna er tekin til svokölluð hatursorðræða gegn hinsegin fólki og öðrum jaðarhópum og af því að stjórnvöld Íslands hafa enn ekki getað skilgreint hvað hatursorðræða er þá höfum við bara dæmin. Það er t.d. verið að sækja mann til saka á Íslandi fyrir að segja að karlar geti ekki fætt börn. Það er staðan á Íslandi og þetta er staðan í Evrópu. En enginn lýsir áhyggjum af þessu í Viðreisn.“

„Það er sama, segi ég, hvaða málaflokki eða hvaða jaðarhópum valdsæknir, frjálslyndir stjórnmálamenn beita fyrir sig í þessu efni. Þegar stjórnvöld ætla að taka sér síaukið vald til þess að sækja borgara til saka fyrir tjáningu með ógagnsæjum hætti er þetta sannarlega staðan. Frelsið á undir högg að sækja,“ sagði í lok ræðu sinnar.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: