- Advertisement -

Galin hugmynd Sjálfstæðismanna

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, skrifaði:

Það er galið að Sjálfstæðismenn vilji selja Landsbankann þegar hann hefur skilað þjóðinni yfir 200 milljörðum í arðgreiðslur á aðeins tíu árum. Þetta er banki í eigu almennings sem tryggir ríkinu öruggar tekjur ár eftir ár. Að selja hann fyrir 350 milljarða er skammsýnt, það er að selja mjólkandi kú til að hafa fyrir skammvinnum útgjöldum.

En í stað þess að selja á að umbreyta Landsbankanum í samfélagsbanka. Það þýðir að ríkið á ekki að setja sér markmið um hámarksarðsemi í þágu ríkissjóðs, heldur að hagræða bankanum þannig að hann þjóni fyrst og fremst heimilum og fyrirtækjum í landinu.

Með því að lækka arðsemiskröfuna úr 10–12% niður í 5–6% mætti beita bankanum sem öflugri jöfnunartæki á fjármálamarkaði:

Lægri vextir á íbúðalánum → raunverulegur ávinningur fyrir heimilin.

Lægri þjónustugjöld → léttir undir daglega fjármálakostnaði landsmanna.

Aukin samkeppni → þrýstir á hina bankana til að lækka kjör sín.

Þannig færi ávinningurinn ekki aðeins í ríkissjóð sem arðgreiðslur, heldur beint í vasa almennings í formi hagstæðari kjara. Þetta væri raunverulegt samfélagslegt hlutverk banka í almannaeigu.

Í stuttu máli:

Að selja Landsbankann er glapræði.

Að halda honum og gera að samfélagsbanka er þjóðhagslega skynsamlegt.

Þannig tryggjum við að bankakerfið þjóni almenningi, ekki eingöngu fjárfestum.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: