Stjórnmál: Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður Flokks fólksins og fyrrverandi menntamálaráðherra, hefur sagt sig úr flokknum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Guðmundur Ingi hefur sent fjölmiðlum.
Lesum:
„Að vandlega íhuguðu máli hef ég ákveðið að segja skilið við Flokk fólksins. Ég sagði mig úr flokknum í morgun og hef greint forseta Alþingis frá þessari ákvörðun.
Ég hyggst áfram gegna störfum sem Alþingismaður fyrir Suðvesturkjördæmi en verð nú þingmaður utan flokka.
Ég styð ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur áfram af heilum hug og mun leggja mitt af mörkum við að styðja stjórnina til góðra verka.
Ástæða þess að ég segi skilið við Flokk fólksins á þessum tímapunkti er trúnaðarbrestur sem varðar persónuleg samskipti innan flokksins. Að svo stöddu mun ég ekki tjá mig frekar um þessa ákvörðun.
Ég vil þakka félögum mínum í Flokki fólksins fyrir samfylgdina og samstarfið á síðustu árum. Saman höfum við náð miklum árangri í veigamiklum baráttumálum og þar vil ég ekki síst nefna kjör öryrkja og aldraðra og áherslur okkar í velferðarmálum. Þeirri baráttu er ekki lokið og ég mun áfram leggja mig allan fram fyrir góðan málstað á Alþingi Íslendinga.“