- Advertisement -

Hægt verði að afturkalla ríkisborgararétt

Verndarkerfið á að vera neyðarkerfi og er ekki ætlað þeim sem koma hingað í leit að betri lífskjörum.

Úr stjórnmálaályktun Sjálfstæðislokksins.

Stjórnmál: Hér fer hluti af nýrri stjórnmálaályktun Sjálfstæðisflokksins:

„Afnema á séríslenskar reglur í útlendingalögum og fækka enn frekar umsóknum um alþjóðlega vernd. Verndarkerfið á að vera neyðarkerfi og er ekki ætlað þeim sem koma hingað í leit að betri lífskjörum. Alþjóðlegar skuldbindingar Íslands um málefni hælisleitenda verði endurmetnar með hagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi. Koma á upp móttökubúðum fyrir hælisleitendur og lokuðu búsetuúrræði fyrir þá sem vísa þarf úr landi. Stjórnvöldum á að vera skylt að afturkalla alþjóðlega vernd þeirra sem fremja alvarleg eða ítrekuð brot gegn hegningarlögum. Sama á við um þá sem hlotið hafa alþjóðlega vernd en snúið sjálfviljugir aftur til heimalands síns. Endurskoða skal fyrirkomulag við veitingu ríkisborgararéttar frá Alþingi með það að markmiði að slíkar ákvarðanir verði fyrst og fremst í höndum stjórnvalda þar sem jafnræðis og gagnsæis er gætt. Lögfest verði heimild til afturköllunar ríkisborgararéttar vegna alvarlegra afbrota.

Með einfaldri lagaumgjörð og skattalegum hvötum á Ísland að vera aðlaðandi fyrir erlenda sérfræðinga.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: