- Advertisement -

Hef oft sagt að ég væri að fara að grennast

„Í nærri tíu ár hefur landinu að miklu leyti verið stjórnað af ríkisstjórnum sem urðu viðskila við heilbrigða skynsemi.“

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, tók þátt í umræðum um stefnuræðu Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra. Hann sagði fyrst:

„Mörgum fannst eflaust kunnuglegt að heyra forsætisráðherra segja í sífellu að nú verði ráðist í tiltekt. Ég sá forsætisráðherrann Jóhönnu Sigurðardóttur ljóslifandi fyrir mér. Hún og samherjar hennar þreyttust ekki á að tala um tiltektir.“

Þetta er mikið rétt. Enda var allt í kalda koli þegar ríkisstjórn Jóhönnu tók við. Mikið var ef Seðlabankinn var ekki kominn á hliðina, hvað þá annað.

Síðar í ræðunni sagði Sigmundur Davíð:

„Svona er þetta líka varðandi ríkisfjármálin og báknið. Það er ekki nóg að segja hlutina. Ég hef upplifað þetta sjálfur, á öðru sviði reyndar. Í gegnum tíðina hef ég oft sagt að ég væri að fara að grennast. Svo áttaði ég mig á því að það skilaði engu fyrr en ég fór að borða minna og nýta hitaeiningarnar betur og í hollari mat. Það er ekki sama orð og efndir.“

Í lok ræðu sinnar sagði SDG:

„Nú ætlast stjórnarmeirihlutinn og félagar til að stjórnarandstaðan hagi sér vel, hlýði hinum rétt bornu. Miðflokkurinn mun ekki hlýða. Við munum styðja öll framfaramál en um leið veigrum við okkur ekki við að veita harða andspyrnu þegar stjórnin fer út af sporinu. Og þegar fullveldi og framtíð landsins er undir munum við hvergi hopa. Í nærri tíu ár hefur landinu að miklu leyti verið stjórnað af ríkisstjórnum sem urðu viðskila við heilbrigða skynsemi. Afleiðingarnar blasa við. En við vitum að það er hægt að gera þetta betur og allt öðruvísi. Við þekkjum tækifæri þjóðarinnar og hversu hratt er hægt að laga hlutina ef skynsemi og hugrekki ráða för. Við erum klár í slaginn og bjóðum alla sem hafa fengið nóg af innihaldslausum orðum, rétttrúnaði og hjarðhegðun og vilja leggja okkur lið velkomna í hópinn. Það er verk að vinna.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: