Stjórnmál: Inga Sæland hefur sent frá sér innihaldslausa yfirlýsingu vegna þess að Guðmundur Ingi hefur sagt sig úr Flokki fólksins sem og þingflokknum. Enn vantar skýringar á hvað gerðist innan flokksins.
Það er mikil eftirsjá að Guðmundi Inga Kristinssyni sem hefur fylgt Flokki fólksins frá upphafi en hefur nú sagt sig úr flokknum. Hann hefur alla tíð verið óþreytandi baráttumaður fyrir öllum okkar helstu baráttumálum eins og bættum kjörum eldri borgara og öryrkja.
Nú þegar Flokkur fólksins er kominn til áhrifa með þátttöku í ríkisstjórn til að fylgja eftir okkar baráttumálum, er því sárt að hann skuli kjósa að starfa einn utan þingflokka á Alþingi.
Það er hins vegar með stjórnmálin eins og annað í lífinu, hver og einn verður að ráða sínum næturstað. Ég þakka Guðmundi Inga fyrir náið og gott samstarf síðastliðinn áratug og óska honum velfarnaðar í framtíðinni.“
Uppfært: Annað hvort átti Guðmundur ekki sæti í neinn nefnd á Alþingi eða það er búið að skipa annað fólk í hans stað.