- Advertisement -

Jakob hættur og snýr aftur í grínið

Tímamót: Jakob Birgisson skrifaði eftirfarandi:

„Kæru vinir, smá tímamót! Ég hef ákveðið að hætta sem aðstoðarmaður dómsmálaráðherra. Það rúma ár sem er að baki í þessu starfi var sannkallað ævintýri og ekki laust við að maður sé margs vísari. Fyrst og fremst er ég þakklátur fyrir frábært tækifæri og einstakt samstarf við Obbu. Hún er traust og góð vinkona. Ég hef mikla trú á henni og ráðuneytið er fullt af eldkláru og duglegu fólki sem ég mun örugglega sakna. Síðan er sérstakt gleðiefni að vinkona mín Þórdís taki við af mér – ég get treyst því að ráðherra og öðrum félögum mínum muni farnast vel með aðstoð hennar.

Það hefur líklega ekki farið fram hjá mínum nánustu að undanförnu að grínið, uppistandið og ýmsar hliðargreinar þess hafa togað í mig. Þetta hefur ágerst þannig undir það síðasta að ég get ekki hunsað það lengur og bind því nú enda á ársleyfi mitt frá kölluninni.

Ég kveð stjórnarráðið í bili og sný aftur á minn gamla, góða vettvang. Það styttist í næstu sýningu. Ég get ekki beðið.

P.S. Nú er ég hættur, svo ég leyfi mér bara að segja þetta: mannanafnanefnd þarf auknar heimildir. Helst afturvirkar.“

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur ráðið Þórdísi Valsdóttur sem aðstoðarmann sinn.

Þórdís er með meistarapróf í lögfræði og hefur starfað sem upplýsingafulltrúi í dómsmálaráðuneytinu frá því í júní á síðasta ári. Hún starfaði í áratug í fjölmiðlum, þ.á.m. sem útvarpsstjóri hjá Sýn þar sem hún veitti útvarpsstöðvum félagsins forstöðu. Þá starfaði hún sem blaðamaður á bæði Fréttablaðinu og Vísi, var þáttastjórnandi útvarpsþáttarins Reykjavík síðdegis á Bylgjunni og sinnti dagskrárgerð sem einn umsjónarmanna Ísland í dag á Stöð 2.

Þórdís tekur við starfinu af Jakobi Birgissyni og mun starfa ásamt Þórólfi Heiðari Þorsteinssyni aðstoðarmanni.