- Advertisement -

Jón Pétur segir valkyrjurnar þrjár vilja afmennska stjórnarandstöðuna

„Sama dag klykkti hæstvirtur ráðherra Inga Sæland út með því að draga þyrfti gamla valdhafa undir húsvegg og skjóta þá.“

Jón Pétur Zimsen.

„Skiptir það máli hvað við segjum hér á Alþingi? Skiptir það máli að við gerum upp hlutina? Í ljósi nýliðinna atburða er svarið já. Var sú orðræða sem ráðherrar viðhöfðu hér í þinginu í sumar um stjórnarandstöðuna til þess fallin að draga úr skautun og skapa sátt í samfélaginu? Er það eðlilegt að á þingi Íslendinga sé stjórnarandstaðan máluð upp sem óvinir þjóðarinnar, hún sé eins og rakkar í ól sem vinni gegn þjóðarhag? Með leyfi forseta, þá hóf Kristrún Frostadóttir fund Alþingis 10. júlí 2025 með þeim orðum „að verja skuli lýðveldið Ísland og heiður Alþingis“,“ sagði Jón Pétur Zimzen Sjálfstæðisflokki á Alþingi fyrr í dag.

„Sama dag tók Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir í sama streng, að ríkisstjórnin ætli að vinna orrustuna um Ísland. Sama dag klykkti hæstvirtur ráðherra Inga Sæland út með því að draga þyrfti gamla valdhafa undir húsvegg og skjóta þá. Hér var verið að búa til þau hughrif að stjórnarandstaðan ynni gegn hagsmunum Íslands, að stjórnarandstaðan ynni gegn lýðveldinu og heiðri Alþingis, að mögulega væri eina leiðin til að þagga niður í henni að draga hana undir húsvegg og lóga henni allri,“ sagði Jón Pétur og hélt svo áfram:

„Ég er ekki að vorkenna okkur í stjórnarandstöðunni heldur að benda á að þessar konur eru fyrirmyndir margra og eftir höfðinu dansa limirnir. Þessi samræmda orðræða er viðhöfð til afmennska stjórnarandstöðuna; andlitslausir óvinir þings og þjóðar, rakkar í ól, að þagga niður í þingmönnum sem fylgja eigin sannfæringu eins og drengskaparheit þeirra kveður á um. Er þetta orðræðan sem má búast við ef hlutirnir falla ekki nákvæmlega eftir höfði Kristrúnar Frostadóttur? Fordæmið er komið og hótunin liggur í loftinu. Er þetta leiðin sem íslenskt samfélag vill láta stjórnmálin fara, dýpka þessa leið og festa hana í sessi? Þetta er ekki leiðin sem stjórnarandstaðan kýs, svo mikið er víst. Við viljum samtal og rökræður í pontu og í nefndum, ekki þöggunartilburði. Við viljum lýðræði og málamiðlanir, ekki að 51% fái 100% og við viljum hag allra Íslendinga sem mestan, ekki bara sumra.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: