Alþingi: Logi Einarsson, menningar- og nýsköpunarráðherra, hefur ákveðið að fækka sjóðum sem indur hans ráðuneyti heyra úr sjö í þrjá. Hann hefur lagt fram frumvarp þess efnis:
…svo sem skattfrádrátt vegna rannsókna og þróunar…
„Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um opinberan stuðning við vísindi og nýsköpun. Í frumvarpinu er lagt til að sett verði ný heildarlög um samkeppnissjóði á sviði vísinda og nýsköpunar og að hlutverk Rannsóknamiðstöðvar Íslands, þ.e. Rannís, verði skilgreint nánar í því samhengi sem þjónustumiðstöð þekkingarsamfélagsins. Samkeppnissjóðir eru skilgreindir í þessu frumvarpi sem afmarkaðir sjóðir sem auglýsa eftir umsóknum og umsækjendum er gefinn kostur á að sækja um styrki í samkeppni við aðra umsækjendur. Úthlutun úr samkeppnissjóðum er byggð á faglegu mati á umsóknum og í samræmi við matsviðmið. Frumvarpið nær hins vegar ekki yfir önnur stuðningsúrræði á sviði rannsókna og nýsköpunar, svo sem skattfrádrátt vegna rannsókna og þróunar eða aðra réttindasjóði,“ sagði ráðherrann á Alþingi.
Síðar í ræðu sinni sagði Logi:
,,,Innviðasjóður sem styður við uppbyggingu…
„Helstu nýmæli í frumvarpinu eru sem hér segir: Samkeppnissjóðum sem heyra undir ráðherra á sviði rannsókna og nýsköpunar verður fækkað úr sjö í fjóra. Sjóðirnir verða þá eftirfarandi: Í fyrsta lagi er Rannsóknasjóður sem fjármagnar grunnrannsóknir og rannsóknatengt framhaldsnám. Sjóðurinn eflir vísindastarf á Íslandi og tryggir nýliðun. Í öðru lagi er nýr sjóður sem mun heita Nýsköpunarsjóður sem fjármagnar nýsköpun á fyrstu stigum, styður við íslenskt þekkingarsamfélag og styrkir verkefni sem eru líkleg til að skila langtímaávinningi. Nýsköpunarsjóður verður til með sameiningu Tækniþróunarsjóðs og Nýsköpunarsjóðs námsmanna. Í þriðja lagi er það Innviðasjóður sem styður við uppbyggingu og samnýtingu rannsókna- og tækniinnviða. Hlutverk hans er útvíkkað frá því sem nú er og nær nú einnig til tækniinnviða en ekki eingöngu til rannsóknainnviða. Þetta er gert til þess að styðja enn betur við sprota og frumkvöðla sem víðast um land og efla samstarf á milli stofnana og fyrirtækja. Í fjórða lagi er það svo nýr sjóður sem heitir Áherslusjóður sem skapar öflugan farveg fyrir áherslumál stjórnvalda á hverjum tíma á sviði rannsókna og nýsköpunar og lausn skilgreindra áskorana. Áherslusjóður sameinar markáætlun á sviði vísinda, tækni og nýsköpunar, Lóu – nýsköpunarstyrki fyrir landsbyggðina og Fléttuna, styrki til innleiðingar á nýsköpun í heilbrigðisþjónustu.“