Sjúkrahús landsins, Landspítali og Sjúkrahúsið á Akureyri, eiga að spara tæpa 2 milljarða króna.
Sonja ýr Þorbergsdóttir.
„Íbúum landsins hefur fjölgað um rúmlega 20 prósent frá 2015. Þá erum við að eldast, en 65 ára og eldri hefur fjölgað um 40 prósent og tæplega helmingur heilbrigðisútgjalda er vegna þessa aldurshóps. Á sama tímabili hefur heilbrigðisþjónusta sætt viðvarandi aðhaldi,“ skrifaði Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB.
„Í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sem samþykkt var í sumar kom fram að mannekla væri stærsta áskorun heilbrigðisþjónustunnar. Ný skýrsla Ríkisendurskoðunar um mönnun á Landspítala segir sömu sögu. Þar er bent á að úrræðaleysi og kerfisleg lausatök hafi einkennt viðbrögð heilbrigðisyfirvalda við mönnunar- og flæðisvanda sjúkrahússins. Það er því jákvætt að verið sé að fjölga hjúkrunarrýmum en miklu meira þarf til,“ skrifar Sonja Ýr.
„Það þarf einnig að styrkja rekstrargrundvöll heilbrigðisþjónustunnar verulega en þess í stað boðar fjárlagafrumvarpið að hún skuli sæta sértækum aðhaldsaðgerðum. Heilsugæslan á að spara tæplega 1,1 milljarð og þar af eiga sjúklingar að greiða milljarð króna vegna aukinnar greiðsluþátttöku. Sjúkrahús landsins, Landspítali og Sjúkrahúsið á Akureyri, eiga að spara tæpa 2 milljarða króna. Eitthvað á að sparast með opinberum innkaupum, annað með breyttri nýtingu tækja og mannafla en um milljaður er óútfærður enn. Þetta er því veruleg veiking á grundvallarinnviðum sem þjóðin er sammála um að þurfi að styrkja.“