- Advertisement -

Nú reynir á ríkisstjórn Kristrúnar

Alþingi: Snorri Másson tók þátt í umræðu um afburðanemendur. Hann sagði:

Snorri Másson
varaformaður Miðflokksins.

„Hæstvirtur menntamálaráðherra hefur hér farið yfir sjónarmið í menntamálum sem eru á skjön við það sem ríkisstjórnin hefur sagt á fyrri stigum. Fyrri ráðherrar í hennar embætti hafa gleypt við orðræðu úr menntakerfinu, að mínu mati, sem er, ef eitthvað er, fjandsamleg afburðanemendum; talað um að það eigi ekki að fleyta rjómann af kökunni, hafa gert það tortryggilegt að reyna að skara fram úr í námi.

Þetta má sannarlega setja í samhengi við t.d. samkeppni nemenda um að komast inn í eftirsótta framhaldsskóla, sem var mjög til umræðu hér. Þar eru samræmd próf við lok grunnskóla mögulega lykilþáttur í að jafna kerfið. Þannig að það verður afar athyglisvert að sjá hvort hin mikla stefnubreyting á þessu sviði og svo í orðum hæstvirts ráðherra um að skóli án aðgreiningar sé barn síns tíma — hvort þessi mikla stefnubreyting og þessi miklu pólitísku tíðindi sem felast í þessari stefnubreytingu ríkisstjórnarinnar verði gerð að veruleika í aðgerðum.

Það reynir á ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur að breyta um stefnu í menntamálum því að nú talar hæstvirtur ráðherra á þá leið, en ekki heyrir maður sama hljóð frá öðrum hæstvirtum ráðherrum. Það verður sannarlega fróðlegt að sjá hvort menn geti látið kné fylgja kviði eða hvort allt sé orðin tóm þótt fögur séu.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: