- Advertisement -

Regus opnar á Íslandi

Ísland verður þar með hluti að víðfeðmu neti Regus

Orange Project teygir nú þjónustu sína út um allan heim með samningi við alþjóðlega stórfyrirtækið Regus um uppbyggingu skrifstofuhótela á Íslandi, Færeyjum og Grænlandi undir merkjum Regus.

Ísland verður þar með hluti að víðfeðmu neti Regus sem teygir sig út um allan heim með yfir 3000 starfsstöðvum í 900 borgum, 120 löndum og setustofum á 800 flugvöllum auk þess sem viðskiptavinir Regus hafa aðgang að 18 milljónum heitra WiFi-reita um víða veröld, meðal annars á hótelum og flugvöllum.

Regus er með þrjár milljónir viðskiptavina og nú opnast þeim aðgangur að skrifstofuhúsnæði á Íslandi og íslenskir viðskiptavinir Regus fá að sama skapi greiðan aðgang að aðstöðu Regus út um allan heim.

Orange Project hefur í á þriðja ár rekið fyrsta flokks skrifstofuhótel á Íslandi og boðið upp á skrifstofur, fundarsali og hópvinnurými í ýmsum stærðum þar sem leigutíminn getur verið allt frá broti úr degi til margra ára. Orange hefur verið leiðandi á þessu sviði hérlendis og með samningnum við Regus verður þjónustan sem er í boði enn betri, skilvirkari og víðfeðmari þar sem viðskiptavinum sem eru á ferð og flugi opnast nú aðgangur að vinnurými út um allan heim.

Þá eru miklir og spennandi möguleikar fólgnir í landnámi sveigjanlegs skrifstofurýmis hjá nágrönnum okkar í Færeyjum og ekki síður á Grænlandi sem er að verða eitt eftirsóttasta landið á norðurslóðum.

Viðskiptavinum Regus og Orange býðst áskrift að þjónustu Regus og með því að greiða fast mánaðargjald hafa þeir aðgang að allri þjónustu Regus hvar sem er í heiminum.
„Það er okkur mikið fagnaðarefni að vera orðin hluti af alþjóðlegu neti Regus,“ segir Tómas Hilmar Ragnarz, framkvæmdastjóri og eigandi Orange Project. „Fyrst og fremst mun þetta gera okkur kleyft að bæta og treysta þjónustuna við viðskiptavini okkar enn frekar auk þess sem erlendum fyrirtækjum opnast greiðari aðgangur að íslensku viðskiptalífi og sveigjanlegum skrifstofum hérna.“

Með samningnum við Regus hefur Orange Projcet einnig tryggt sér réttinn til þess að opna skrifstofuhótel undir merkjum Regus í Færeyjum og Grænlandi. „Við sjáum fyrir okkur að Ísland verði með þessu tengipunktur Ameríku og annarra Evrópulanda við norðurheimskautsslóðirnar og heiminn handan þeirra.“

Regus er með um þrjár milljónir viðskiptavina út um allan heim, þar á meðal stórfyrirtæki eins og Google og Apple og Tómas segist sjá fyrir sér að það geti auðgað íslenskt atvinnu- og viðskiptalíf að landið sé komið á heimskortið hjá Regus.

„Á Íslandi er mikill fjöldi af hámenntuðu og sérhæfðu fólki og við sjáum fyrir okkur að erlend fyrirtæki, sem vilji tengjast Íslandi og hagnýta sér legu landsins, geti opnað hér útibú og nýtt sér um leið mannauðinn sem er hér fyrir,“ segir Tómas.

„Orange Project hefur í tæp þrjú ár verið leiðandi í leigu á tilbúnu og sveigjanlegu skrifstofurými á Íslandi og við ætlum að halda því áfram bara af enn meiri krafti og nú einnig á norðurslóðum með því að bæta Færeyjum og Grænlandi við. Möguleikarnir eru margir og spennandi ekki síst á Grænlandi sem mun verða í brennidepli á norðurslóðum í nánustu framtíð.“

Regus var stofnað í Brussel í Belgíu 1989 og hugmyndafræðin að baki fyrirtækinu er og hefur ætíð verið að fólk og fyrirtæki geti unnið hratt og örugglega í síkvikum heimi nútímaviðskipta með öruggum aðgangi að fyrsta flokks skrifstofurýmum hvar sem er í heiminum.

Mark Dixon, stofnandi og stjórnarformaður Regus segir kraftmikil nútímafyrirtæki þurfa að geta starfað hvar sem er í heiminum, hvenær sem þeim hentar og því fagni hann því að Ísland hafi bæst við Regus-netið sem teygi sig yfir 120 lönd.

„Hvort sem um er að ræða fjölþjóðleg fyrirtæki eða sprotafyrirtæki þá hefur þörfin fyrir sveigjanleika, snerpu og réttu staðsetninguna aldrei verið jafn mikilvæg og nú. Núna geta fyrirtæki á Íslandi og gestir á landinu gengið í hóp þriggja milljóna félaga í viðskiptasamfélagi Regus og notið allra þeirra kosta sem fylgja því að vera hluti af alþjóðlegu neti okkar með aðgangi að 3000 starfsstöðvum út um allan heim,“ segir Dixon.
Regus er skráð á Kauphöllinni í London og er með 8.400 starfsmenn.

Meðal viðskiptavina Regus eru stórfyrirtæki á borð við Apple, Disney, Sky, Amex, Samsung, Barclays og Google sem er með 70 starfsstöðvar hjá Regus víða um heiminn.


Auglýsing