- Advertisement -

Eitt mesta skemmdarverk sem unnið hefur verið á efnahagslífi þessara landa

Umræðan: Hilmar Þór Hillarsson prófessor við Háskólann á Akureyri skrifaði þessa grein:

„Viðtal sem Morgunblaðið tók við mig árið 2018 í tilefni þess að þá kom út bók eftir mig sem ber titilinn: „The Economic Crisis and its Aftermath in the Nordic and Baltic Countries: Do As We Say and Not As We Do.“ Þar er meðal annars fjallað um afleiðingar fastgengisstefnu Eystrsaltsríkjanna í kreppunni 2008/9. ESB bannaði þeim að fella gengið og var fastgengisstefna skilyrði þess að löndin fengju að taka upp evruna síðar. Löndin þurftu að grípa til mikils niðurskurðar í ríkisfjármálum sem svo leiddi til gríðarlegs flólksflótta aðallega ungs fólks og þá einkum þess sem var best menntað. Þetta er eitt mesta skemmdarverk sem unnið hefur verið á efnahagslífi þessara landa og munu þau seint jafna sig á þessu. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn vildi leyfa 15% gengisfellingu í Lettlandi en því hafnaði ESB.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: