Umræðan/Facebook: Vilhjálmur Birgisson, formaður SGS og VLFA, skrifaði:
„Samanlagður hagnaður þriggja stærstu viðskiptabankanna nam um 94 milljörðum króna á síðasta ári.
Á sama tíma námu arðgreiðslur 46,3 milljörðum króna og eigið fé bankanna er nú nálægt 800 milljörðum króna.
Til samanburðar er heildarkostnaður kjarasamningsbundinna launahækkana á öllum íslenskum vinnumarkaði minni en þessi hagnaður bankanna þriggja.
Þú gætir haft áhuga á þessum
Hringir þetta engum bjöllum á Alþingi?
Eða er það talið eðlilegt að hagnaður þriggja fjármálafyrirtækja sé meiri en launahækkanir alls launafólks í landinu?“