Stjórnmál: Vefrit Samfylkingarinnar, Kratinn.is, skrifar um fylgiskannanir:
„Samfylkingin mælist langstærsti flokkur landsins samkvæmt nýrri könnun Gallup sem var framkvæmd í mars. Alls segjast 30 prósent landsmanna að þeir myndu kjósa flokkinn ef kosið yrði í dag, sem er næstum tíu prósentustigum meira en í síðustu kosningum. Fylgið eykst milli mánaða og myndi skila Samfylkingunni 23 þingmönnum, átta fleirum en flokkurinn er með nú þegar.
Samfylkingin er stærsti flokkurinn hjá öllum aldurshópum eins , þar sem munurinn er þó vel innan skekkjumarka. Sú mantra að Miðflokkurinn sé að ryksuga yngsta aldurshópinn fær ekki stoð í könnun Gallup. Fylgi hans mælist þar undir heildarfylgi flokksins, eða 18,7 prósent. Á sama tíma segjast nánast tvöfalt fleiri, 36 prósent, svarenda í aldurshópnum 18-29 ætla að kjósa Samfylkinguna. Það er raunar sterkasti aldurshópur jafnaðarflokks Íslands eins og staðan er í dag.

Ríkisstjórnin heldur vel samkvæmt þessari könnun, með 34 þingmenn og er enn með yfir 50 prósenta stuðning. Það gerðist síðast hjá ríkisstjórninni sem var mynduð 2007 að stuðningur hélst yfir því marki þegar jafn langt var liðið á kjörtímabil, og svo fjaraði reyndar hratt undan henni í kjölfarið vegna bankahrunsins. Þar áður þarf að horfa til stjórnarinnar sem var mynduð 1999 til að finna stjórn sem hélt yfir 50 prósenta stuðningi tæpu einu og hálfu ári eftir kosningar.
Framsókn sterkust hjá 70 ára og eldri
Stóru tíðindin af öðrum flokkum í könnuninni eru þau að einungis fimm flokkar mælast inni. Framsókn tapar fylgi eftir að Lilja Alfreðsdóttir, nú starfsmaður þingflokks Framsóknar, tók við formennsku af Sigurði Inga Jóhannssyni, enn þingmanni flokksins, og næði ekki inn á þing. Flokkurinn mælist nú raunar með svipað fylgi og Vinstri græn. Fylgið á höfuðborgarsvæðinu hjá Framsókn er mjög lítið og sterkasti kjósendahópur flokksins er 70 ára og eldri.
Miðflokkurinn er eini stjórnarandstöðuflokkurinn sem er að bæta við sig einhverju fylgi frá síðustu kosningum.
Athygli vekur að ef þetta yrðu niðurstöður kosninga þá myndu 13,7 prósent atkvæða falla niður dauð, og það myndi ýkja þingsætafjölda þeirra fimm flokka sem myndu ná inn.