Hverjum á að trúa? Hvað er á leiðinni og hvenær er það á leiðinni? Eða er ekkert á leiðinni?
Stefán Vagn Stefánsson.
Alþingi: Stefán Vagn Stefánsson, nýkjörinn þingflokksformaður Framsóknarflokksins sagði á Alþingi:
„Er planið að virka? Hæstvirtur forsætisráðherra telur svo vera og vill halda sínu plani þrátt fyrir að engar tölur, hvorki í fjármálaáætlun né fjárlögum, haldi. Hæstvirtur fjármála- og efnahagsráðherra hefur boðað til aðgerða til að bregðast við stöðunni í efnahagsmálum sem er í raun og veru í algerri andstöðu við hæstvirtan forsætisráðherra og staðfestir það sem allir sjá að planið er svo langt frá því að virka.
Virðulegur forseti. Hverjum á að trúa? Hvað er á leiðinni og hvenær er það á leiðinni? Eða er ekkert á leiðinni? Það er það sem fólkið í landinu er að spyrja að. Á hvern er bent og hver ber ábyrgð? Þann 10. september sagði hæstvirtur forsætisráðherra í stefnuræðu sinni, með leyfi forseta:
„Þessi ríkisstjórn tekur ábyrgð á stjórn efnahagsmála í landinu, fulla ábyrgð, og við munum aldrei hlaupast undan eða benda fingri á alla aðra. Ekki á minni vakt.“
Nú er það þannig, virðulegur forseti, að mér hefur fundist hér í allri umræðu að hæstvirtur forsætisráðherra standi við orð sín þegar vel gengur en þegar gefur á bátinn eins og nú, þá sé einmitt fingri veifað í allar áttir; allt sé öðrum að kenna, ekki sé tekin ábyrgð, hvað þá full ábyrgð.
Virðulegur forseti. Ef hæstvirtur forsætisráðherra hefur sama skilning á fullri ábyrgð í þessu máli og fullum yfirráðum yfir auðlindunum í umræðunni um ESB þá verð ég að segja að áhyggjur mínar hafi aukist frekar en minnkað varðandi þá fyrirhuguðu vegferð hæstvirtrar ríkisstjórnar.“