- Advertisement -

Snorri efast um ávinning af því að; „greiða frítt háskólanám fyrir bara allan heiminn“

„Svo fær fólk náttúrlega oft dvalarleyfi með einum eða öðrum hætti í kjölfar þessa.“

Snorri Másson Miðflokki.

„Það hefur vakið athygli mína í fjölmiðlum að undanförnu á að fjallað er um sprengingu í umsóknum útlendinga um háskólanám utan EES, sannkallaða sprengingu þar sem það er tekið til þess að Íslendingar eru, að því er virðist, eina Norðurlandaþjóðin sem innheimtir ekki skólagjöld af nemum utan EES sem hingað koma,“ sagði Snorri Másson á Alþingi.

„Svo eru aðilar á TikTok að auglýsa þetta sem auðvelda leið inn í landið, ókeypis nám. Það er fjallað um það að 2.322 umsóknir um nám við skólann frá 92 löndum utan EES hafi komið í fyrra og það er einu þúsundi fleiri en árið á undan. Að sjálfsögðu er eitthvað af þessu bara afskaplega eðlilegur hluti af náminu og auðvitað eru erlendir nemendur við skólann, það hefur alltaf verið og verður alltaf, en þarna eru merki að mínu mati um misnotkun á kerfinu til að komast inn í landið. Svo fær fólk náttúrlega oft dvalarleyfi með einum eða öðrum hætti í kjölfar þessa,“ sagði Snorri.

„Við verðum að átta okkur á samhengi hlutanna. Þetta er í raun og veru svipaður fjöldi sem kemur utan EES á þessum forsendum, þessari háskólaleið sem er einfaldlega orðin þekkt leið til þess að komast inn í landið, og sækir t.d. um alþjóðlega vernd sem fær mikla umræðu. Löndin sem nefnd eru þarna eru Nígería, Bandaríkin, Pakistan. Þau fá hérna frítt háskólanám eins og stendur. Mér er til efs að ávinningur okkar Íslendinga af því að greiða frítt háskólanám fyrir bara allan heiminn sé svo mikill að þetta sé þess virði,“ sagði Snorri Másson.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: