- Advertisement -

Sólveig Anna setur ofan í við Kristrúnu

Stjórnmál: Sólveig Anna Jónsdóttir hnýtir í Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra:

„Sammála leikskólastjóranum í Kópavogi. Það er vægast sagt undarlegt að sjá forsætisráðherra, fyrst hún á annað borð er að skipta sér af leikskólamálum, ráðast að Kópavogsmódelinu en tala ekki um hrikalegt ástand mála í Reykjavík, sem öll sem einhverja innsýn hafa í málin þekkja vel. Það er leiðinlegt að sjá greint og metnaðarfullt fólk tilbúið til að stunda svo innihaldsrýra pólitík.

Ofurálag, viðvarandi mönnunarvandi, gríðarlega há veikindatíðni (9,9%), skortur á fagmenntuðu starfsfólki; þegar að forsætisráðherra minnist ekki einu orði á öll þessi vandamál Reykjavíkurborgar í ávarpi á 1. maí en vitnar í handónýta skýrslu um að brúa bilið, skýrslu þar sem niðurstaðan er að árið 2030 eigi öll börn við 12 mánaða aldur að fá pláss á leikskóla en að allsekki megi lengja fæðingarorlof, er augljóslega verið að spila ódýra pólitík í atkvæða-veiðiferð. Það finnst mér ekki sæmandi þegar verið að fjalla um svo alvarlegt málefni.

…ekki einu sinni börnin okkar.

Forysta verkalýðshreyfingarinnar og Samfylkingin láta sem ekkert skipti máli fyrir fólk annað en kostnaður þegar kemur að leikskóladvöl barna en það má einfaldlega ekki vera svoleiðis: Við erum að ræða um stofnun þar sem að börn samfélagsins dvelja langa daga – aðbúnaður þeirra og starfsfólksins sem vinnur við að gæta þeirra getur ekki orðið eitthvað aukaatriði sem við fáumst ekki til að fjalla um. Það er ekki sæmandi siðuðu samfélagi sem kennir sig við norræna velferð að láta sem ekkert skipti meira máli en peningar, ekki einu sinni börnin okkar.

Það á að ræða kosti og galla Kópavogsmódelsins og spyrja t.d. starfsfólkið þar hvernig þeim líður í kjölfar breytinganna sem þar voru gerðar. Og svo á að bera módelin saman með upplýsandi og málefnalegum hætti. Slíkt væri sæmandi þeim sem vilja láta taka sig alvarlega í svo alvarlegum málaflokki og eitthvað sem við öll hljótum að vilja sjá og skoða.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: