stjr.is Stuðningur við Leigjendaaðstoð Neytendasamtakanna hefur verið stórefldur, með styrksamkomulagi sem Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, hafa undirritað. Stuðningur félags- og húsnæðismálaráðuneytisins nemur 25 milljónum króna og er um meira en þreföldun styrkupphæðar að ræða miðað við árið í fyrra.
- Leigjendaaðstoð Neytendasamtakanna tekur samkvæmt samkomulaginu að sér að veita leigjendum og leigusölum íbúðarhúsnæðis upplýsingar um rétt þeirra og skyldur samkvæmt húsaleigulögum.
- Leigjendaaðstoðin veitir leigjendum einnig lögfræðiráðgjöf þegar upp kemur ágreiningur vegna leigusamninga um íbúðarhúsnæði.
„Það er lykilatriði að leigjendur standi ekki einir þegar á reynir. Með þessum aukna stuðningi erum við að styrkja þjónustu sem nýtist heimilum um land allt. Jafnframt skiptir máli að leigusalar þekki skyldur sínar og hafi aðgang að ráðgjöf og stuðningi,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra.
„Leigumarkaðurinn hefur reynst mörgum krefjandi og þörfin fyrir góða og áreiðanlega ráðgjöf er mikil. Með þessum stóraukna stuðningi getum við styrkt þjónustuna verulega og tryggt að fleiri fái þá þjónustu sem þeir þurfa,“ segir Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna.
Þjónusta sem er fólk að kostnaðarlausu
Þjónusta Leigjendaaðstoðarinnar er fólki að kostnaðarlausu. Reglulegir símatímar eru á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl. 12:30-15:00.
Margvíslegar upplýsingar um réttindi og skyldur leigjenda og leigusala eru á vef Leigjendaaðstoðarinnar – leigjendur.is. Finna má upplýsingar á vefnum á íslensku, ensku, pólsku og úkraínsku. Þar er einnig hægt að finna algengar spurningar og svör og senda fyrirspurnir rafrænt.
Vefur Leigjendaaðstoðar Neytendasamtakanna