„Þetta snýst um lífskjör venjulegra Íslendinga, allra sem leggja sitt af mörkum.“
Ólafur Adolfsson.
„Við í Sjálfstæðisflokknum viljum breyta þessu. Við viljum skera burt óþarfaskriffinnsku, einfalda regluverk og gera það gagnsærra. Það á ekki að þurfa lögfræðingaher til að hefja rekstur. Það á ekki að taka mánuði að fá leyfi fyrir einföldum framkvæmdum. Við eigum að hafa regluverk sem tryggir sanngirni og öryggi en sem jafnframt gefur fólki svigrúm til að skapa og starfa,“ segir meðal annars í ræðu Ólafs Adolfssonar þingflokksformanns Sjálfstæðisflokksins frá því í gærkvöld.
Hér á eftir fer valinn kafli úr ræðu Ólafs:
„Þegar við lítum út fyrir landsteinana sjáum við að samkeppnin er hörð. Það sem heldur lífskjörum okkar uppi er að við stöndum okkur vel í samanburði við aðra. Ef regluverkið er of íþyngjandi, ef skattar eru of háir eða ef óvissan er of mikil, þá missum við forskotið. Þá dregur úr fjárfestingu, nýsköpun og atvinnusköpun. Þess vegna viljum við leggja áherslu á einfalt og sanngjarnt skattkerfi. Við viljum tryggja stöðugleika í efnahagsmálum. Við viljum að Ísland sé land tækifæranna, land sem laðar að sér hugvit og dugnað. Það er það sem tryggir okkur betri lífskjör, ekki bara í dag heldur til framtíðar.
Frú forseti. Þetta verkefni er stærra en einn þingmaður, stærra en einn flokkur. Þetta er sameiginlegt verkefni okkar allra hér. Þegar atvinnulífið blómstrar, þá blómstrar samfélagið. Þegar fyrirtæki dafna verður svigrúm til að bæta kjörin, efla þjónustu og styrkja innviði. Þetta eru einföld sannindi og þau eru grundvöllur þess að við getum staðið saman sem þjóð.
Sjálfstæðisflokkurinn mun áfram berjast fyrir frelsi til athafna, fyrir verðmætasköpun og fyrir því að lítil og meðalstór fyrirtæki fái rými til að eflast. En við þurfum líka að tala beint til fólksins. Þetta snýst ekki bara um tölur í ríkisreikningi eða glærur í ráðuneytum. Þetta snýst um lífskjör venjulegra Íslendinga, allra sem leggja sitt af mörkum.“