- Advertisement -

„Þessi vinstri stjórn er skattaóð“

Alþingi: Til stendur að stofna innviðafyrirtæki sem tæki drjúgan þátt í þeim knýjandi verkefnum hér og þar, helst í vegarð og öðru ámóta. Guðlaugur Þór Þórðarson sagði:

„Hér koma hins vegar fulltrúar ríkisstjórnarflokkanna og segja: Heyrðu, vandinn er skortstaða. Já, virðulegi forseti, það er vandinn og það er á ábyrgð ríkisstjórnarflokkanna sem hér hinum megin við götuna, í Vonarstræti, hafa borið ábyrgð á lóðaskorti í Reykjavík. Tökum á því. En það er ekki gert, virðulegi forseti. Það er nefnilega búið að finna upp hugtak sem menn nota hjá ríkisstjórnarflokkunum til að hækka skatta á alla. Hvað er það? Þetta er ekki venjulegt fólk. Þetta er ekki venjulegt fólk, eins og kom fram hjá háttvirtum þingmanni. Þessar 148 fjölskyldur eru ekki venjulegt fólk.

Virðulegi forseti. Það þarf að skilgreina í lögum hvað ríkisstjórnin á við. Ríkisstjórnin er búin að hækka tekjuskatt á láglaunafólk með samsköttuninni, því að það er það sem verður fyrir því, það eru aðilarnar sem eru með lægri tekjurnar. Fjölskyldan, það hækkar skatturinn á þær. Og af hverju? Það er ekki venjulegt fólk. Þessi vinstri stjórn er  skatta- og skylduóð og er bara hækkandi skatta á allt það sem þeim dettur í hug og þegar þau rekur í vörðurnar og hafa ekki rök segja þau bara: Heyrðu, þetta er allt í lagi, þetta er ekki venjulegt fólk.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: