- Advertisement -

„Þjóðin á betra skilið og Miðflokkurinn mun nú, líkt og áður, standa með þjóðinni“

Störf þingsins: Eiríkur S. Svavarsson varaþingmaður Miðflokksins, sem situr á þingi þessa dagana, sagði eftirfarandi á Alþingi fyrir skömmu:

„Gærdagurinn hér á Alþingi markaði upphafið að Evrópuvegferð ríkisstjórnar Íslands, ríkisstjórnar sem gefist hefur upp á því verkefni sem hún hlaut kosningu til; að berja niður verðbólgu, stuðla að lækkun vaxta og sýna aðhald í ríkisfjármálunum. Bætt er í verðbólgubálið af hálfu ríkisstjórnarinnar með gjaldahækkunum, nýjum sköttum og litlum 143 milljörðum af nýjum útgjöldum. Það er í raun búið að tryggja að verðbólgan lækki ekki hér á landi á næstunni. Efnahagslega hrannast óveðursskýin upp, atvinnuleysið eykst og forsendur kjarasamninga eru við það að bresta. Það er þessi tímapunktur sem ríkisstjórnin telur réttastan til að steypa íslensku þjóðinni í átök um það hvort ganga eigi í Evrópusambandið. Í stað þess að velja leið forystu og samstöðu þegar þrengir að íslenska þjóðarbúinu er valin leið sem klýfur þjóðina og dreifir orkunni frá því sem máli skiptir.

Lífskjör á Íslandi eru með því besta sem þekkist. Landið deilir þeirri stöðu með Noregi og Sviss, þeim ríkjum Evrópu sem standa utan Evrópusambandsins. Það er fullveldisrétturinn sem öðru fremur kom okkur út úr áföllum bankahrunsins og það er fullveldisrétturinn sem hér hefur skapað meiri hagvöxt og meiri hagsæld en nokkurt ríki Evrópusambandsins getur látið sig dreyma um. Þennan fullveldisrétt vill ríkisstjórn Íslands nú veikja. Hún vill leita í meðalmennskuna í stað metnaðar, hún vill leita í ríkjasamband þar sem hagvöxtur er miklu lægri en þekkist hér og hún vill fórna auðlindahagkerfi landsins á altari regluverks sem við höfum engin áhrif á, jafnvel þó að við eigum sæti við borðið, eins og það er kallað hjá ríkisstjórninni. Það sæti við borðið jafngildir hálfum þingmanni á Alþingi Íslendinga þegar litið er til þingmannafjölda Evrópuþingsins. Þjóðin á betra skilið og Miðflokkurinn mun nú, líkt og áður, standa með þjóðinni.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: