- Advertisement -

Þrjú ömurleg skítmenni

Dæmigert. Boðar vopnahlé án þess að meina nokkuð með því. Þetta er úrklippa af mbl.is.

Margt er víst líkt með skít og kúk. Mannkynið býr við það að þrjú tilfinningalaus skítmenni sitja í háum valdastólum.

Byrjum á Pútín forsta Rússlands sem boðaði vopnahlé á ömurlegri innrás Rússa í Úkraínu yfir páskana. Sagðist ekki ætla að herja á hermenn Úkraínu né óbreytta borgara. Auðvitað stóð hann ekki við það.  Ekki er mark takandi á skítmenninu Pútín.

Benja­mín Net­anja­hú, for­sæt­is­ráðherra Ísra­els, er kannski verstur af öllum vondum. Hann fremur þjóðarmorð gegn varnarlausu fólki. Fólki sem getur ekki varist yfirburðum ísraelska hersins. Forsætisráðherrann virðist, eða er, fullkomlega ærulaus. Hann er hryllingur.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Síðastur í þessu ömurlega tríói er Donald Trump forseti Bandaríkjanna. Hann tekur af fólki löngu áunnin mannréttindi. Hótar og hótar öðrum þjóðum með boðun viðskiptastríðs. Margt fólk er hrætt við hann og ákvarðanir hans. Verst er þó að hann á eftir rétt tæp fjögur ár í Hvíta húsinu.

Vissulega er margt um þessi illmenni að segja. Það gera aðrir betur en ég. Mannkynið horfir á þessu dusilmenni halda áfram illum verkum sínum. Og virðist ráðalaust með öllu.

sme


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: