Borgarstjórn: „Við viljum að öll börn og unglingar geti tekið þátt í frístundastarfi óháð efnahag og félagslegum aðstæðum. Frístundakortinu er ætlað að auka jöfnuð í samfélaginu og fjölbreytileika í iðkun íþrótta, lista og tómstunda. Í gildandi reglum um frístundastyrk er gert ráð fyrir að frístundakortið nýtist vegna námskeiða sem standa yfir tiltekinn lágmarkstíma, með hliðsjón af félagslegum markmiðum og mikilvægi samfellu í starfi,“ segir í bókun meirihlutaflokkanna fimm.
Áfram með bókunina:
„Í sáttmála samstarfsflokkanna er sérstaklega kveðið á um að unnið verði að breytingum á reglum um frístundakort þannig að heimilt verði að nýta það til að greiða fyrir sumarnámskeið eða styttri námskeið. Markmiðið er að draga úr aðstöðumun og auka möguleika barna í viðkvæmri stöðu til að taka þátt í fjölbreyttu starfi en á árunum 2024 og 2025 voru að meðaltali 3.550 börn sem ekki nýttu frístundakortið. Tillaga þessi miðar að því að auka sveigjanleika kerfisins, bæta aðgengi og stuðla að aukinni þátttöku barna í fjölbreyttu frístundastarfi. Með því að hrinda af stað afmörkuðu tilraunaverkefni gefst tækifæri til að meta áhrif aukins sveigjanleika á nýtingu frístundakortsins og kanna hvort breytingin leiði til aukinnar þátttöku barna sem annars stæðu utan skipulagðs starfs. Menningar- og íþróttaráði verður falið að útfæra og kostnaðarmeta efni tillögunnar.“
Helgi Áss Grétarsson, sem hefur sagt skilið við Sjálfstæðisflokkinn og gengið í Miðflokkinn, bókaði þetta:
Eigi að síður hefur tillagan sitthvað til síns ágætis…
„Þessi tillaga samstarfsflokkanna hefur þann brag á sér að vera útspil til að afla atkvæða í aðdraganda borgarstjórnarkosninga en af tillögunni leiðir að útkoman af henni eigi að vera tilkynnt átta dögum fyrir kjördag. Í gögnum málsins er engin tilraun gerð til að greina hvaða afleiðingar tillagan kunni að hafa á fjárhag Reykjavíkurborgar. Eigi að síður hefur tillagan sitthvað til síns ágætis þar eð það kann að vera skynsamlegt að auka sveigjanleika frístundakortsins, meðal annars til að mæta hagsmunum hóps barna og ungmenna sem hafa minna á milli handanna. Í þessu ljósi styður borgarfulltrúinn að kostir og gallar þessa tilraunaverkefnis verði kannaðir nánar.“