- Advertisement -

Vilhjálmur vill lægri skatta á atvinnulífið

„Þú skuldar hátt í 10.000 kall líka í kílómetragjald, vinur — sem þú gerðir ekki ráð fyrir, kominn í skuldafangelsi.“

Vilhjálmur Árnason.

Alþingi: Vilhjálmur Árnason, ritari Sjálfstæðislokksins og þingmaður, mælti fyrir áliti fyrsta minnihluta vegna kílómetragjaldsins. Hæst bar í ræðu hans að hann lagði eindregið til að skattar á fyrirtæki yrðu lækkaðir. Vilhjálmur sagði meðal annars:

…setja flækjustigið og búa til báknið…

„Ef markmiðið er að draga úr losun þá er ekkert sem dregur meira úr losun heldur en fjárfesting í nýrri tækni, hvort sem við ætlum að tala um skip eða bíla eða flugvélar. Ef við viljum raunverulega draga úr losun þá eigum við að draga úr skattlagningu á atvinnulífið svo að atvinnulífið hafi fjárfestingargetu til að kaupa nýrri og umhverfisvænni bíla, nýrri og umhverfisvænni skip, nýrri og umhverfisvænni flugvélar, en hér erum við að skattleggja þau bæði með kolefnisgjaldi og kílómetragjaldi, setja flækjustigið og búa til báknið — algerlega óskiljanlegt. Ekki nóg með að við séum að setja þessar auknu álögur á atvinnulífið sem býr við mjög erfiðar aðstæður í dag, atvinnuleysi í landinu hækkar, afkoman hefur dregist saman, sérstaklega í ferðaþjónustunni — og hvað ætlum við að gera um leið og við hækkum álögurnar? Jú, við ætlum að fela þeim að sjá um innheimtuna á þessum álögum. Og hvernig eiga þau að innheimta þetta? Með gríðarlegum kostnaði.“

Að eiga eða eiga ekki 10.000 kall

Ögn síðar í ræðu sinni sagði Vilhjálmur:

„Svo er annað sem ég hef miklar áhyggjur af og hefur kannski ekki verið mikið rætt hérna. Í dag mætir maður bara á dæluna og ef maður á 10.000 kall þá getur maður sett 10.000 kall á bílinn og þá keyrirðu bara þangað til nálin er komin á núll. Svo áttu ekki meiri pening og getur ekki keyrt meira og ert búinn að borga öll gjöld, allt klárt. Ef kílómetragjaldið kemur til og þú átt 10.000 kall, ferð á dæluna og dælir óvart fyrir allan 10.000 kallinn þá ertu enn þá að borga til ríkissjóðs virðisaukaskatt og kolefnisgjald. Svo ætlarðu að taka út og í staðinn fyrir olíu- og bensíngjaldið þá ætlar þú að breyta því í kílómetragjald. Þú þarft þá að borga það öðruvísi og til þess að geta borgað það þarftu að skrá notkunina á bílnum þínum. Svo klárast eldsneytið fyrir 10.000 kall. Þú kemst vissulega mikið lengra, fleiri kílómetra, og þá færðu reikning um mánaðamótin frá Skattinum sem gefur ekkert eftir: Þú skuldar hátt í 10.000 kall líka í kílómetragjald, vinur — sem þú gerðir ekki ráð fyrir, kominn í skuldafangelsi.“

Endum á þessari tilvitnun í ræðu Vilhjálms Árnasonar:

Til að toppa þetta rugl algerlega…

„Þarna hef ég áhyggjur af fólkinu sem er með minna á milli handanna. Það er verið að veiða það í gildru. Þetta getur verið mjög alvarlegt atriði. Í staðinn fyrir að borga allt á staðnum í dag — og ég veit að það er mjög algengt núna, ég hef heyrt fjölda dæma um að fólk skrái þetta ekki reglulega. Það verður mörgum á að vera ekki nógu duglegir að skrá. Ég hef heyrt að svona 50.000–80.000 kr. bakreikningur sé algengur. Eins og kemur fram hérna þá eru það efstu tekjutíundirnar sem keyra um á rafmagnsbíl og þar eru lægri upphæðir. Ef sambærileg dæmi eru að gerast á hærra gjaldinu þá erum við að tala um tugþúsundir króna sem fólk er kannski ekki borgunarfólk fyrir. Þá erum við að fara að búa til skattaskuldir úti um allt. Mér finnst þetta ekki sanngjarnt gagnvart fólki sem getur lent í þessu. Til að toppa þetta rugl algerlega máttu bara skrá kílómetrana á 30 daga fresti og ef þú hefur keyrt meira einn mánuðinn og skráir það þá færðu ekki rukkun fyrir því fyrr en mánuðinn þar á eftir og þá þarftu að borga álag frá Skattinum. Þú þarft að borga álag frá Skattinum fyrir að það leið einn mánuður sem þú borgaðir færri kílómetra. Þetta hefur Skatturinn hingað til ekki verið tilbúinn að fella niður. Þetta tók ég upp á nefndarfundi og er með staðfest dæmi hér, mjög nýlegt dæmi og það hefur komið til fjármálaráðuneytisins.“

Hér má lesa ræðu Vilhjálms óstytta.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: