- Advertisement -

Lítil hækkun launa hægir á efnahagsbata

Megindrifkraftur launavaxtar hefur átt rætur að rekja til nýmarkaðsríkja. Sé horft framhjá áhrifum mikils vaxtar í Kína fellur vöxtur raunlauna á heimvísu niður í rúmt prósent. Þetta bendir til lítils vaxtar launa í þróuðum ríkjum en líkt og kemur fram í skýrslu Alþjóðavinnumálastofnunarinnar hafa laun staðið í stað í mörgum þróuðum ríkjum og dregist saman sumstaðar. Lítil hækkun launa hefur hægt á efnahagsbatanum í Evrópu, haldið niðri eftirspurn og skapað aðstæður fyrir verðhjöðnun.

Það hefur hægt á vexti raunlauna á heimsvísu en á árinu 2013 nam vöxturinn 2%, sem 0,2 prósentustigi lægra en árið á undan. Hækkun launa er þannig enn langt undir því sem þekktist fyrir kreppu líkt og kemur fram í nýlegri skýrslu Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO), Global Wage Report. Skýrsluhöfundar vekja sérstaka athygli á stöðunni innan þróaðra ríkja, sérstaklega í ljósi þess að innan margra þeirra voru raunlaun lægri árið 2013 heldur en þau voru árið 2007 (t.d. í Grikklandi, Ítalíu, Japan, Spáni, Írlandi og Bretlandi).

Innan þróaðra ríkja hafa raunlaun ekki vaxið í takt við aukna framleiðni og hægur vöxtur launa hefur þannig orðið til þess að draga úr hlutfalli launa af verðmætasköpuninni á undanförnum tveimur áratugum. Þessi þróun er breytileg milli ríkja en líkt og bent er á í skýrslunni gætir töluverðra áhrifa af þróun stærstu hagkerfanna, þ.e. Þýskalands, Japans og Bandaríkjanna.

Í skýrslunni er einnig skoðaður ójöfnuður í fjölda ríkja en í um helmingi þeirra þ.m.t. á Íslandi jókst ójöfnuður á árunum 2006-2010. Bæði jókst ójöfnuður mældur sem bilið milli hinna 10% tekjuhæstu og hinna 10% tekjulægstu en einnig jókst ójöfnuður mældur hjá millistétt en þá er skoðað hlutfallið milli efri og neðri millistéttar.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Það getur verið breytilegt eftir löndum hvort skýra megi vaxandi ójöfnuð með launabreytingum, breytingum á fjölda starfandi eða af öðrum ástæðum. Þegar horft er á bilið milli hinna 10% tekjuhæstu og hinna 10% tekjulægstu hafa bæði launabreytingar og breytingar á fjölda starfandi haft áhrif. Þegar litið er á ójöfnuð innan millistéttarinnar hefur hann að mestu verið drifinn áfram af launaþróun.

Sjá frétt á vef ASÍ.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: