- Advertisement -

SDG: Blekkingaleikurinn mikli

Umræðan/ESB: Sigmundur Davíð Gunnlaugsson skrifaði eftirfarandi í Mogga dagsins:

„Það að beita þeim blekkingum sem ríkisstjórnin hefur beitt og mun beita áfram með dyggum stuðningi stórs hluta stjórnkerfisins, margra fjölmiðla og áróðursvéla Evrópusambandsins sýnir ekki traust til þjóðarinnar. Það sýnir yfirlæti,“ segir í Moggagrein Sigmundar Davíðs.

„Átökin sem nú eru hafin um framtíð og fullveldi Íslands snúast ekki bara um aðild að Evrópusambandinu. Þau munu líka skera úr um hvort hægt sé að stjórna Íslandi án nokkurra tengsla við veruleikann. Hvort umbúðamennskan sé orðin allsráðandi.

Ríkisstjórn landsins telur sig nú geta leitt þjóðina inn í Evrópusambandið með hreinum spuna og ósannindum.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Blekkingaleikurinn hófst skömmu eftir að ríkisstjórnin tók við með tíðum ferðum utanríkisráðherra til Brussel. Erfiðar aðstæður innan ríkisstjórnarinnar gerðu svo Viðreisn kleift að krefjast þess að ESB yrði sett í forgang.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: