
Sigurjón Þórðarson alþingismaður:
Það er alveg ljóst að mat á stærð fiskistofna er ekki nákvæmt t.d. var þorskstofninn árið 2019 endurmetinn 270 þús tonnum minni nokkrum árum síðar eða nálægt 20% minni.
Stjórnmál: Regluglega birtir RÚV „fréttaskýringar“ þar sem endursagðar eru heimsendafréttir erlendra miðla um fiskveiðar. Á tíundaáratugnum var birt falspá um hrun allra fiskistofna heimsins árið 2048. Fyrir nokkrum árum var því haldið fram að
fiskistofnar heimsins myndu flýja norður rúman tug km árlega.
Nú í vikunni var umfjöllunarefnið frétt á Guardian þar sem fjallað var um þá kenningu að fiskistofnar heimsins minnki um 7,2% við hlýnun sem svarar til 0,1 C gráðu hækkun hitastigs. Niðurstaðan var víst fengin úr rannsóknum á 34.000 fiskistofnum frá árinu 1993 til 2021.
Það er mjög sérkennilegt að hlusta á sviðsstjóra botnfiskrannsókna á Hafró taka þátt í þessum fabúleringum í stað þess að slá varnagla og reyna að lenda umræðunni málefnalega. Það er alveg ljóst að mat á stærð fiskistofna er ekki nákvæmt t.d. var þorskstofninn árið 2019 endurmetinn 270 þús tonnum minni nokkrum árum síðar eða nálægt 20% minni. Sama má segja um makrílinn en gott ef stofninn var ekki endurmetinn sl. haust liðlega fjórum sinnum stærri en hann var mældur á tíunda áratugnum.
Ris og hnig fiskistofna er eðlilegur hlutur og það er mikil bjartsýni að ætla að ætla að hafa alla stofna uppsjávarfiska í toppi á sama tíma sem eru að keppa um sömu fæðuna. Það er svona álíka eins og að ætla hætta veiðum á þorski og ýsu innfjarða og fá upp innfjarðarrækju inn á fjörðum í veiðanleigu magni.