Samfélag: Kvörtun til Persónuverndar yfir gjaldtöku Creditinfo fyrir aðgang að lánshæfismati:
„Hagsmunasamtök heimilanna hafa beint kvörtun til Persónuverndar yfir gjaldtöku fyrirtækisins Creditinfo Lánstrausts hf. fyrir aðgang einstaklinga að upplýsingum um sitt eigið lánshæfismat,“ segir í tilkynningu frá Hagsmunasamtök heimilinna.
„Creditinfo hefur löngum boðið einstaklingum aðgang að upplýsingum um lánshæfismat sitt gegn gjaldi en gjaldfrjálst samþykki viðkomandi einstaklingur að deila svokölluðum viðbótarupplýsingum með fyrirtækinu til notkunar við gerð lánshæfismats. Nýlega gerði fyrirtækið þá breytingu á þessu að nú er í öllum tilvikum krafist gjalds fyrir aðgang einstaklings að sínu eigin lánshæfismati. Fullt gjald er nú 2.900 krónur en lægra eða 1.990 krónur ef viðkomandi samþykkir að deila viðbótarupplýsingum með fyrirtækinu, sem annars væri óheimilt að safna og nýta við vinnsluna.
Hagsmunasamtök heimilanna telja gjaldtökuna vera ólögmæta og girða með ólögmætum hætti fyrir að einstaklingar geti greiðlega nýtt sér rétt sinn til aðgangs að persónuupplýsingum sínum, andmæla, leiðréttingar, takmörkunar vinnslu og endurskoðunar á niðurstöðum lánshæfismats. Með því að hnika einstaklingum til að samþykkja aukna vinnslu persónuupplýsinga gegn lægra gjaldi fyrir aðgang að niðurstöðum lánshæfismats sé jafnframt grafið undan vernd persónuupplýsinga með ólögmætum hætti. Samtökin hafa því beint kvörtun yfir þessari gjaldtöku til Persónuverndar.
Að mati Hagsmunasamtaka heimilanna er það óforsvaranlegt að fyrirtæki í einokunarstöðu á vinnslu upplýsinga um fjárhagsmálefni og lánstraust landsmanna sem gerir sér mat úr þeim upplýsingum, skuli í ofanálag krefja einstaklinga um gjald fyrir aðgang að þeirra eigin persónuupplýsingum og brjóta þannig gegn lögbundnum réttindum þeirra. Neytendur hafa aldrei verið beðnir um leyfi fyrir því að fjárhagsupplýsingar þeirra séu gerðar að söluvöru og einhvers staðar verður að draga línu í sandinn. Lögbundin réttindi neytenda til aðgangs að þeirra eigin upplýsingum má aldrei gera að féþúfu!“
- Advertisement -
Auglýsing
Miðjan
Ritstjóri Miðjunnar.