- Advertisement -

Hildur kallaði Sönnu „súkkulaðikleinu“

„…það er óhjákvæmilegt að líta svo á að í umræddu tilviki hafi það átt að vísa til hörundslitar Sönnu.

Eiríkur Rögnvaldsson.

Kosningar: Hildur Björnsdóttir steig vel yfir línuna þegar hún kallaði Sönnu Magdalenu „súkkulaðikleinu“ sem ljúgi. Auðvitað voru þessi ummæli fullkomlega óviðeigandi. Rasísk ummæli segi ég. Fullkominn fantaskapur.

Eiríkur Rögnvaldsson skrifaði af þessu tilefni:

„Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík notaði orðið „súkkulaðikleina“ um oddvita Vinstrisins í hlaðvarpi nýlega og sagði „Einmitt bara Sanna sem einhvern veginn fær oft að vera algjör súkkulaðikleina í umræðunni“. Í frétt DV af þessu segir: „Eitthvað ber á því á samfélagsmiðlum að fólk telji orðið súkkulaðikleina vera niðrandi í garð Sönnu og þar sé einna helst verið að vísa til húðlitar hennar. Súkkulaðikleina mun hins vegar vera orð sem ekki síst var notað í leikjum barna áður fyrr þar sem eitt þeirra fær að vera stikkfrí, þ.e.a.s. ef t.d. um einhvers konar eltingaleik var að ræða þá var ekki hægt að klukka barnið eða ná því. Viðkomandi barn var þá kallað súkkulaðikleina.“ Þetta er í sjálfu sér rétt, en það þýðir ekki að notkun orðsins sé þar með saklaus og eðlileg í þessu samhengi.

„Súkkulaðikleina er niðrandi…

Egill Helgason.

Það er alþekkt að ýmis orð sem í sjálfu sér eru saklaus eru notuð á niðrandi hátt um hinsegin fólk, fólk af erlendum uppruna, fólk með annan hörundslit en hvítan, o.s.frv. Þótt „súkkulaðikleina“ hafi verið notað í óformlegri umræðu, ekki síst meðal barna, án þess að um vísun til hörundslitar væri að ræða minnist ég þess ekki að hafa séð það notað áður í pólitískri umræðu og það er óhjákvæmilegt að líta svo á að í umræddu tilviki hafi það átt að vísa til hörundslitar Sönnu. Hafi svo ekki verið, og Hildi hafi orðið á að nota orð úr barnamáli í hita leiksins, er að minnsta kosti lágmarkskrafa að hún biðji Sönnu umsvifalaust afsökunar. Annars verður að líta á þetta sem ógeðfelldan rasisma sem maður hefði þrátt fyrir allt ekki átt von á hjá oddvita Sjálfstæðisflokksins.“

Egilll Helgason bætti við:

„Súkkulaðikleina er niðrandi á þann að það vísar til einhvers sem fær að vera með upp á náð og miskunn en hefur lítið fram að færa.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: