- Advertisement -

Af hverju kýs ég ekki Katrínu Jakobs

Birgir Dýrfjörð skrifar:

Sú staðreynd ein og sér verður mér, og vonandi fleiri kjósendum, kærkomið tækifæri til að leggja ofsóttu fólki lið með þeim hætti, að kjósa Baldur sem forseta Íslands.

Birgir Dýrfjörð.

Forsetakosningar Meðal vina minna er dálæti mitt á Katrínu Jakobsdóttur vel þekkt. 

Ég hef ævinlega gengið undir högg fyrir hana þegar fólk hefur rakkað niður persónu hennar.

Sem sagt, mér finnst Katrín Jakobsdóttir frábær persóna, – af hverju kýs ég hana þá ekki?
Skjáskot: Kryddsíld.

Þó er langt frá því að ég hafi verið eða sé samþykkur pólitískum ákvörðunum hennar.

Sem sagt, mér finnst Katrín Jakobsdóttir frábær persóna, – af hverju kýs ég hana þá ekki?

Góða skýringu á því má finna í þekktum spakmælum.  „Segðu mér hverjir vinir þínir eru, og ég skal segja þér hver þú ert, og líka „Hver dregur dám af sínum sessunaut.“

Katrín er vissulega sterkur frambjóðandi, en ekki nógu sterk tel ég til að sleppa óskemmd frá þeirri vanhelgu sambúð, sem hún valdi sér við mykju-dreifarana,  sem valsa að vild sinni og ausa úr sér á verndarsvæði Moggans. Blaðinu til skammar og ærlegum lesendum þess til ama. 

Með þeirri sambúð varð hún að mínu viti vanhæf sem forseti Íslendinga. Það er hennar ógæfa.

Hennar bíða líklega sömu örlög og skjaldbökunnar sem ferjaði sporðdrekann á bakinu.

Dýrmæt þekking Baldurs

 Sem betur fer fyrir okkur kjósendur þá er fleira gott fólk í boði en Katrín Jakobsdóttir.

 Sá frambjóðandi sem mér þykir vænlegastur er Baldur Þórhallsson.

 Sá frambjóðandi sem mér þykir vænlegastur er Baldur Þórhallsson. 

Í mín eyru er Baldri lýst þannig af þeim sem þekkja vel til hans, að hann sé  drenglundaður og umhyggjusamur einstaklingur, afar vel greindur og með sérþekkingu, sem hentar vel forseta.

Hann er sérmenntaður um stöðu smáríkja í heiminum.  Leiðtogar smáríkja gætu því, ef þannig ber til, leitað í smiðju forseta Íslands  eftir þekkingu, og hollráðum um hagsmuni smáríkja.  

Samkynhneigð 

Allt eru þetta góðir kostir sem Baldur býr yfir.  Þá er ótalinn sá þáttur í hans fari  sem snertir fjölda fólks um allan heim.  

Svona eru Íslendingar þeir virða friðhelgi og rétt allra til einkalífs, eins og stjórnarskrá þeirra boðar.

Sá þáttur varðar miklu fyrir fjölskyldur og fólk ,sem er niðurlægt, ofsótt og smánað og  limlest, fyrir það eitt að vera samkynhneigt.

Allt það fólk, – hvar sem er í veröldinni, – mun finna styrk og fyrirmynd í Baldri Þórhallssyni. 

Það getur þá sagt með stolti; forseti Íslands er líka samkynhneigður.

Kosning Baldurs Þórhallssonar mun vekja mikla athygli.  Hún segir við heiminn:

Svona eru Íslendingar þeir virða friðhelgi og rétt allra til einkalífs, eins og stjórnarskrá þeirra boðar.

Kosning hans eykur umburðarlyndi og styrkir stöðu jaðarsettra einstaklinga.

Sú staðreynd ein og sér verður mér, og vonandi fleiri kjósendum, kærkomið tækifæri til að leggja ofsóttu fólki lið með þeim hætti, að kjósa Baldur sem forseta Íslands.

Þannig geta Íslendingar orðið fyrirmynd um réttsýni og mannvirðingu og kærleika 

                                 Birgir Dýrfjörð.  Höf. er iðnaðarmaður.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: