Alþingi:
Sigurjón Þórðarson skrifaði:
„Ég tók þátt í opnum fundi atvinnuveganefndar um ráðstöfun aflaheimilda til að efla atvinnu og byggð í landinu, en auðvitað ætti það verkefni ekki að snúast um einhver 5,3% heldur stjórn veiðanna í heild sinni sbr. 1. gr. laga um stjórn fiskveiða.
Það var mikill samhljómur í fyrirspurnum stjórnarliða og voru þeir Ingvar Þóroddsson og Eiríkur Björn með áhugaverðar spurningar sem snéru að atvinnufrelsi og gagnrýni á að stórútgerðin sé komin inn í þessa byggðapotta.
Stjórnarandstaðan fór ekki leynt með andstöðu sína á strandveiðum og var gerð heiðarleg tilraun til þess m.a. af Jóni Gunnarssyni að reyna að skapa úlfúð meðal smábátasjómanna og etja þeim hver á móti öðrum.
Fyrir mig breyskan manninn fannst mér tilkomumikið að verða vitni að því þegar heilagur Bergþór Ólason kvað upp siðferðisdóm yfir innviðaráðherra en það var á 1.04.30 mín.“