- Advertisement -

Þorgerður Katrín segi af sér

Alþingi:

Karl Gauti Hjaltason Miðflokki:

„Fyrir rétt um hálfum mánuði efndi ríkisstjórnin til þjóðaratkvæðagreiðslu um afstöðu þjóðarinnar til Evrópusambandsins. Fyrir kosningarnar var það helsta viðkvæði stjórnarliða að segjast treysta þjóðinni. Treysta þjóðinni. Atkvæðagreiðslunni var reyndar hrundið af stað þrátt fyrir að einn stjórnarflokkanna hefði ítrekað lýst andstöðu sinni við aðild að Evrópusambandinu og margsinnis lagt fram tillögu um brottfall umsóknar ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur.

Hæstvirtur utanríkisráðherra tók alla stjórn í þessu máli og gekk þar í fylkingarbrjósti af hálfu ríkisstjórnarinnar. Hæstvirtur forsætisráðherra sparaði sig mjög í umræðum í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar. Hún tók enga forystu í málinu, enga, og ekki heldur eftir atkvæðagreiðsluna. Hana lét hún utanríkisráðherranum eftir sem gekk fram af offorsi og hefur rýrt sig að áliti og trausti bæði í Brussel og Washington. Hæstvirtur utanríkisráðherra á ekkert erindi lengur í sínu embætti og henni væri sæmst að segja sig frá því þegar í stað.

Hlustaði ríkisstjórnin á þjóðina þegar allt kom til alls? Hlustaði hún? Nei, það voru orðin tóm. Þau hafa reyndar haldið fyrir bæði eyru í hálfan mánuð. Þrátt fyrir að þjóðin hafi alfarið hafnað Evrópuvegferð ríkisstjórnarinnar streitist hún á móti því að draga umsóknina til baka. Þar hefur hæstvirtur forsætisráðherra einnig eftirlátið forystuna til formanns Viðreisnar í stað þess að gera hið augljósa: Fara eftir skýrri niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar. Hyggst ríkisstjórnin, undir forystu utanríkisráðherra Viðreisnar, hefna sín á þjóðinni með því að gera Evrópureglur rétthærri í íslenskum lögum?“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: