- Advertisement -

Ég virði í rauninni það samstarf sem ég er í og fylgi því algerlega með bros á vör

Alþingi:

Ágætlega ákveðin orðaskipti urðu milli Jens Garðars Helgasonar, þingmanns og varaformanns Sjálffstæðisflokksins, og Ingu Sælands formanns Flokks fólksins og mennta- og barnamálaráðherra, á Alþingi

Jens Garðar bauð Ingi í dans:

„Hér er ekki verið að tala um eitthvert stefnumál sem er í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Hér er verið að tala um mál sem hæstvirtur ráðherra og hennar þingflokkur hefur lagt fram sex sinnum og nú liggur hér fyrir þingmannamál þar sem er akkúrat verið að tala um það sem hæstvirtur ráðherra hefur lagt fram sex sinnum. Þetta er ekki í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Þjóðin er búin að hafna áframhaldandi viðræðum við Evrópusambandið. Af hverju, og ég spyr: Af hverju getur hæstvirtur ráðherra þá ekki stutt framlagða þingsályktunartillögu í ljósi þess að hæstvirtur ráðherra hefur barist fyrir þessu máli og lagt fram sex sinnum, síðast 2024, og það er ekki hluti af stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og þar af leiðandi er flokkur hæstvirts ráðherra ekki bundinn af neinum stjórnarsáttmálum og getur greitt atkvæði með sínu góða máli sem fram er komið núna.“

Þarna missteig Jens Garðar sig. Gaf Ingu kost á að gera ákveðna athugasemd. Gaf henni góð spil. Að segja Ingu hafi lagt málið fram sex sinnum. Sem Inga kann að meta góðar sendingar. Hún sagði:

„Ég veit ekki af hverju hann er alltaf að tala um að ég hafi mælt fyrir þessu sex sinnum. Það skiptir kannski ekki öllu máli. Mig minnir að það hafi nú verið þrisvar en það er nú önnur saga. Hins vegar stóð alltaf vilji minn og okkar til þess að fá úr því skorið, því það kom upp á tímabili spurningin um það hvort umsóknin væri raunverulega gild eða ekki, hvort hún lægi bara ofan í skúffu í Brussel og biði eftir því að við myndum endurvekja hana eða hvort í rauninni við hefðum dregið hana alfarið til baka. Þess vegna komum við með þessar tillögur hér inn. Þess vegna lagði ég ítrekað fram þingsályktunartillögu þess efnis sem þingmenn háttvirtir þingmenn Jens Garðars Helgasonar voru alls ekki að taka undir. Við vorum eiginlega eyland hvað þetta varðaði á Alþingi Íslendinga á þessum tíma og það virtist enginn hafa hinn minnsta áhuga á því í eina sekúndu að fá úr því skorið hvort við ættum formlega að draga þessa umsókn til baka vegna þess að hér héldu menn því blákalt fram að hún hefði verið dregin til baka. Við sögðum náttúrlega: Nei, það er ekki hafið yfir allan vafa.

Háttvirtur þingmaður, svoleiðis er staðan og ég er ekki að fara að kýtast um það hér og nú hvort eða hvernig eða hvort eða ef. Staðan er svona. Ég virði í rauninni það samstarf sem ég er í og fylgi því algerlega með bros á vör.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: