Alþingi:
Sigurður Ingi Jóhannsson sagði:
Hin mikla verkstjórn.
„Ég ætla að tala um störf þingsins bókstaflega, störf löggjafarþingsins. Síðasta mánuðinn, frá 21. september, sem sagt síðustu vikunni fyrir kjördæmaviku, og til dagsins í dag, hafa verið haldnir þó nokkrir þingfundir hér á Alþingi. Þeir hafa staðið frekar stutt; innan við tvo tíma, innan við þrjá tíma, innan við tvo tíma, innan við tvo tíma, innan við þrjá tíma, innan við klukkustund, innan við klukkustund, fyrir utan óundirbúna fyrirspurnatíma, störf þingsins og sérstakar umræður, þ.e. um löggjafarhlutann, enda eru á þessu löggjafarþingi aðeins 29 mál komin frá ríkisstjórninni og þar með talin öll fjárlögin. Einu málin sem hefur verið rætt um í 1. umræðu eru umdeild mál eins og húsaleigufrumvarp hæstvirts félagsmálaráðherra og bókun 35. Að öðru leyti hefur þetta gengið býsna hratt. Í næstu viku er Norðurlandaráðsþing og ríkisstjórnin, hin mikla verkstjórn Kristrúnar Frostadóttur, hæstvirtur forsætisráðherra, hefur þar af leiðandi skilað 29 frumvörpum og fimm ályktunum til þingsins þegar nóvember hefst.
…á að skila 70 milljörðum
í útflutningstekjur.
Sama ríkisstjórn hefur haldið því fram, og sérstaklega hæstvirtur atvinnuvegaráðherra, að það sé ekki hægt að setja mál á dagskrá sem sé svo umfangsmikið vegna þess að það taki svo mikinn tíma frá þinginu. Ég spyr, frú forseti: Frá hverju er verið að taka tíma? Hér er ég auðvitað að tala um lagareldisfrumvarpið um fiskeldi, um atvinnugrein sem á að skila 70 milljörðum í útflutningstekjur og hefur verið sögð eitt stærsta og mesta sóknarfæri til að sækja fram í lífskjörum þjóðarinnar. Þessi atvinnugrein, hvort sem hún er á landi, í landeldi, þar sem fyrir standa fleiri hundruð milljarða fjárfestingar, eða í sjókvíaeldi, þar sem þarf framþróun eða eitthvað slíkt og viðbótarfjárfestingar, er í fullkominni óvissu og ríkisstjórnin segir: Nei, það tekur svo mikið pláss í þinginu. Það tekur svo mikinn tíma í þinginu.
Ég spyr aftur, frú forseti: Frá hverju tekur þetta mál tíma hér í þinginu? Ég skora á hæstvirtan forseta og jafnvel atvinnuveganefnd, sem hefur eitt mál frá ríkisstjórninni til umfjöllunar í haust, að taka málið upp hér í þinginu ef framkvæmdarvaldið getur ekki komið með þetta hér inn.“