- Advertisement -

TRÚÐASTJÓRNMÁL

Stjórnmál:

Stefán Ólafsson, prófessor emiritus, skrifaði:

„Er ekki óþarfi að gera of mikið úr því að skemmtikrafturinn Jón Gnarr semji við Viðreisn um að sleppa við vinnuskyldur á þingi en halda öllum greiddum fríðindum sem hann fékk frá flokknum?

Miðað við mótsagnakenndar skýringar Jóns sjálfs á orsökum breytinganna þá snýst þetta bara um tækifærismennsku og athyglissýki. Ríkisstjórnin er með óbreyttan mikinn meirihluta og siglir án efa ótrauð áfram. Stjórnarandstaðan reynir hins vegar að lesa sem mest inn í þetta og Mogginn kann enn þá list að spila á rótlausa einstaklinga í stjórnmálum og beitir öllu sínu vélarafli til að reyna að valda skaða á stjórnarsamstarfinu.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Hinn annars ágæti stjórnmálafræðingur Eiríkur Bergmann á ekki að vera að færa þeim óþarflega mikið fóður í slíkar æfingar. Lærifaðir hans Ólafur Þ. Harðarson afgreiddi þetta miklu betur!“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: