Alþingi:
Sigurjón Þórðarson skrifaði:
Nokkrir þingmenn stjórnarandstöðunnar en þó ekki allir hafa ítrekað leikið þann leik að vera afar móðgunargjarnir og í senn meinsamir.
Í fyrirspurnartíma þingsins spurði Ingibjörg Isaksen út í nýttt gagnsærra einkunnakerfi í tölustöfum, en hún tortryggði breytingarnar mjög og efaðist um að þær væru faglegar.
Inga Sæland svaraði spurningu Ingibjargar skilmerkilega og ákveðið á meðan þingmenn stjórnarandstöðunnar göluðu framm í m.a. að væri ráðherra fallinn með 4,9 og annað í þeim dúr.
Viti menn – að loknum fyrirspurnartíma stormuðu upp í ræðustól snokkrir sármóðgaðir þingmenn og kvörtuðu yfir meintum dónaskap ráðherra.
Hér er ræðan sem fór svo fyrir brjóstið á viðkvæmri stjórnarandstöðu en mér þætti vænt um ef einhver benti mér á hver dónaskapurinn sé í ræðunni.

Mennta- og barnamálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða fyrirspurn. Ég heyri náttúrlega að hv. þingmaður er ekki alveg meðvituð um hvernig skólakerfið hefur verið byggt upp og einkunnagjöf almennt. Við höfum alltaf í upphafi hvers árs fengið að sjá hver fyrirhuguð stundaskrá barnanna okkar er og hvernig námsmat fer fram. Við skulum taka sem dæmi íslensku, 7 er 7 þar. Ef nemandi svarar 100% rétt á prófi þá fær hann 10 en við höfum verið að taka inn alls konar hæfnisviðmið inn í áfangana. Við höfum t.d. verið að taka inn lesfærni og lesskilning, við höfum verið með ritgerðir, verkefnaskil og annað slíkt sem gildir kannski 5%, 10% eða 15% af lokaeinkunn.
Þetta þekkja allir, bæði kennarar og nemendur. Það er verið að drepa hér málum á dreif og reyna að gera hluti tortryggilega sem er virkilega búið að vera að kalla eftir af nánast 100% nemenda.
Þetta veitir jafnræði á milli skóla sem gefur nemendum og foreldrum dýpri og gleggri yfirsýn yfir stöðu ungmenna sinna. Það að það eigi að gefa hér einkunn í tölustöfum, hv. þingmaður, á komandi vori, það er nóvember núna og það verður þá væntanlega í júní, mun einfaldlega verða til þess að það verður ekki ósamræmi á milli skóla. Það verður ekki þannig að það sé einhver sérstakur passi, eins og hefur verið hér í bókstafakerfinu, að þeir sem fái A, eins og 56% nemenda í ónefndum skóla gerðu t.d. á síðasta ári, eigi bara fyrsta val inn í sinn uppáhaldsskóla.
Það liggur algerlega fyrir að 10 er 10, hv. þingmaður, og 7 er 7, hv. þingmaður, en samkvæmt hæfnismati og því sem við leggjum upp með í hverju fagi fyrir sig þá mun eðli málsins samkvæmt 10% af t.d. verkefnaskilum verða þess valdandi að þó að þú fáir 10 í lokaeinkunn í lokaprófi, og þetta ætti hv. þingmaður að vita sem kennari, að þá er það kannski bara 9.