STJÓRNMÁL:
Stefán Pálsson skrifaði:
„Félagsmálaráðherra og fyrrum formaður VR er skiljanlega mjög sár út í aðstoðarseðlabankastjóra fyrir að segja svona hreinskilnislega að fjármálastefna bankans hafi leitt til atvinnuleysis. En Seðlabankinn er samt bara að framfylgja efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar.
Í vor lýsti fjármálaráðherra því að markmið hennar væri að framkalla atvinnuleysi því það væri hagfræðileg nauðsyn.
Grípum niður í orð hans þá: „Fjármálaráðherra segir óhjákvæmilegt að atvinnuleysi aukist vegna aðgerða ríkisstjórnarinnar sem snúa að því að ná tökum á þensluverðbólgu. Hann viðurkennir að betur mætti ganga í efnahagsmálum.“
Það verður ekki tekið af ríkisstjórninni að henni hefur tekist að ná markmiðum sínum. Atvinnulausum Íslendingum hefur fjölgað um mörgþúsund manns með tilheyrandi áhrifum á líf og sjálfsvirðingu alls þessa fólks.“