Stjórnmál:
Jón Gnarr skrifar þetta í Mogga dagsins:
„Ég hef um tveggja ára skeið verið hermaður á vígstöðvunum. Það hefur vissulega stundum komið til átaka en sem betur fer ekki blóðugra. Þetta er stríð án blóðsúthellinga. En stríð engu að síður. Ég er sjálfboðaliði og get því að mestu leyti sjálfum mér um kennt hvernig fyrir mér er komið. Það voru hugsjónir og baráttuvilji sem knúðu mig til þess að skrá mig og ég trúði því einlæglega að ég væri að berjast fyrir verðugan málstað. Ég var ekki að sækjast eftir neinum metorðum, medalíum eða járnkrossum til að skreyta mig með. Ég hef verið mjög þakklátur því mér hefur fundist ég hafa lent í nokkuð góðri herdeild. Mórallinn hefur verið góður og ég hef verið nokkuð sáttur við mitt hlutskipti.
Ég hef verið alveg sérlega ánægður með liðþjálfann okkar. Hann hefur haft vakandi auga með okkur, lagt línurnar í hernaðartækni eða verið fulltrúi okkar í samningaviðræðum við óvinina. Hann hefur stundum náð að koma á vopnahléi og tímabundnu friðarsamkomulagi. Við vorum líka framan af með herprest. Hann veitti okkur oft huggun og gat blásið manni kjark í brjóst á erfiðum stundum, ekki síst þegar mikil þoka var og myrkur og allskyns óvættir á sveimi sem voru vel til þess fallnir að hræða óreynda hermenn. Það segir sig auðvitað sjálft að svona hernaður getur á stundum verið óttalegt hangs. Þá sitjum við bara í skotgröfunum og bíðum þess sem verða vill en vitum samt vel að á hverri stundu getur skollið á með miklum hvelli. Stundum gerist það að hershöfðingjar hafa komið og þá gjarnan til að ávarpa hópinn eða tilkynna um nýja tilskipun, ákvörðun sem hefur verið tekin af Herráðinu. Ég neita því ekki að oft hafa mér þótt þessar tilskipanir sérkennilegar og ekki í samræmi við það sem ég taldi mig vera að berjast fyrir.
Var sendur
til bardaga.
Í sumar var ég svo sendur, nokkuð óforvarendis, til bardaga. Ég gekk útfrá því að við fengjum stuðning úr lofti, fallbyssur myndu varða okkur leið og jafnvel einhver leynivopn. En það var ekkert slíkt, við hlupum bara beint af augum og útí buskann og týndum að lokum hvert öðru. Og töpuðum auðvitað bardaganum. Og bæði liðþjálfanum og prestinum.
Það hefur lítið frést frá Aðalstöðvunum. Ég hef sent ábendingar um alvarlega stöðu í hópnum, beðið um skotfæri, matvæli og aðrar augljósar nauðsynjar í hernaði. Ég hef líka haft áhyggjur af félögum mínum. Það eru margir með martraðir og eiga þá til að segja ótrúlegustu hluti uppúr svefni. Það hefur því miður verið fátt um svör. Ég hef jafnvel gerst svo frakkur að leyfa mér að efast um að það sé einhver raunveruleg áætlun eða markmið með þessu stríði. Ég vil ekki gerast liðhlaupi en tel mér betur borgið utan herdeildar en innan. Ég hef alls ekki gefið upp baráttuviljann. Ég þarf að ná áttum. Ég er ekki sami nýliði og ég var og held að ég sé bara ágætis hermaður. En mig vantar vopn og vistir. Það er enginn skortur á vígvöllum. En þegar ég mæti næst verð ég skipulagðari og betur vopnum búinn.“