Stjórnmál:

Erna Bjarnadóttir skrifar:
Strax 1. september benti ég á í grein á Vísi að Þorgerður Katrín þyrfti að axla pólitíska ábyrgð á niðurstöðunni og segja af sér.
„Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir kaus að sitja áfram sem utanríkisráðherra eftir að kjósendur höfnuðu hennar helsta pólitíska baráttumáli. Með því hvarf ábyrgð hennar á ósigrinum ekki. Nú segir Jón Gnarr að forysta flokksins hafi brugðist honum.
Hann lýsir ákvarðanafælni og klíkumyndun og segir formanninn ekki hafa sýnt áhyggjum sínum skilning. Samt vill hann áfram vera í Viðreisn. Gagnrýnin beinist að starfsháttum og forystu flokksins sem hann telur sig enn eiga pólitíska samleið með.
Að sögn Jóns var niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar mikið áfall innan flokksins. Samkvæmt frásögn Össurar Skarphéðinssonar hafnaði forystan ósk Jóns um endurmat á stöðunni með því að Viðreisn væri ekki eins máls flokkur. Eins og það undanþiggi hana því að gera upp ósigurinn.
Strax 1. september benti ég á í grein á Vísi að Þorgerður Katrín þyrfti að axla pólitíska ábyrgð á niðurstöðunni og segja af sér. Þegar ráðherra leggur svo mikið af stjórnmálaferli sínum að veði er víða talið eðlilegt að viðkomandi víki þegar umboðið sem sóst var eftir fæst ekki.
Þorgerður Katrín hefur þess í stað kosið að sitja sem fastast og gera andstæðingum sínum upp skoðanir. Í ræðu sinni um bókun 35 gekk hún svo langt að gera andstöðu við frumvarp sitt að andstöðu við EES-samninginn. Á meðan sitja flokksfélagar hennar eftir án þess uppgjörs sem þarf til að marka leiðina fram á við á grundvelli niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar.“